Ída Bjarklind Magnúsdóttir lék sinn fyrsta leik á tímabilinu með Selfossi þegar liðið mætti Val í Olís-deild kvenna um helgina. Ída eignaðist sitt fyrsta barn í byrjun júlí á þessu ári og var því að snúa aftur á handboltavöllinn rúmum fjórum mánuðum eftir barnsburð. Ída var í leikmannahópi Selfoss í fyrsta sinn á tímabilinu og kom við sögu í leiknum gegn Val þar sem Selfyssingar þurftu að sætta sig við tap, 23-34. Endurkoma Ídu eru þó jákvæð tíðindi fyrir Selfossliðið sem hefur þar með endurheimt öflugan leikmann fyrir komandi átök í deildinni. Ída er hávaxin skytta sem getur einnig látið mikið að sér kveða í varnarleiknum. Hún gekk til liðs við Selfoss fyrir síðustu leiktíð og lék ellefu leiki með liðinu þar sem hún skoraði samtals 28 mörk. Áður hafði hún leikið með Víkingi í Grill 66-deildinni. Selfoss situr í sjötta sæti Olís-deildar kvenna með níu stig eftir tíu leiki. Endurkoma Ídu gefur liðinu aukna breidd, bæði í sókn og vörn, þegar líður á keppnistímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.