Grótta hafði betur gegn KA/Þór
Eyjólfur Garðarsson

Einn leikur fór fram í Olís deild kvenna í kvöld þegar Grótta fékk KA/Þór í heimsókn. Staðan í hálfleik var 13-11 fyrir Gróttu og stelpurnar á Seltjarnarnesi gáfu ekkert eftir í síðari hálleiknum og lönduðu að lokum fimm marka sigri 30-25.

Atkvæðamest í liði Gróttu var Eva Björk Davíðsdóttir en hún skoraði átta mörk. Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir og Katrín S Scheving skoruðu sex mörk og aðrar minna.

Lydía Gunnþórsdóttir skoraði átta mörk fyrir gestina frá Akureyri og Sólveig Lára Kristjánsdóttir skoraði fimm og aðrar skoruðu minna.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top