Wolff yfirgefur Kiel sumarið 2028
SVEN SIMON / AFP

Þýska stórliðið THW Kiel hefur staðfest að samningur þýska landsliðsmarkvarðarins Andreas Wolff verði ekki framlengdur. Markvörðurinn hefur undanfarnar vikur verið sterklega orðaður við VfL Gummersbach en núverandi samningur hans við Kiel rennur út sumarið 2028.

Hinn 35 ára gamli Andreas Wolff, sem á að baki 199 landsleiki fyrir Þýskaland, sneri aftur til Kiel frá pólska félaginu Kielce sumarið 2024. Hann hafði áður leikið með Kiel á árunum 2016 til 2019.

Viktor Szilagyi, framkvæmdastjóri Kiel, segir mikilvægt að hefja skipulagningu tímanlega þegar kemur að jafn mikilvægri leikstöðu og markvarðarstöðunni.

„Við áttum opinskáar viðræður en það varð ljóst að þrátt fyrir íþróttalega hæfileika Andi passaði heildarpakkinn ekki lengur inn í framtíðaráætlanir okkar varðandi leikmannahópinn. Þá horfast menn í augu og taka ákvörðun. Það var það sem við gerðum,“ sagði Szilagyi.

Wolff segist þakklátur Kiel fyrir að hafa gert honum kleift að snúa aftur í þýsku úrvalsdeildina fyrir tveimur árum en nú hafi þurft að meta hvað hentaði honum og fjölskyldu hans best.

„Það var mikilvægt fyrir mig að fá skýrleika í þessi mál núna svo ég geti einbeitt mér að fullu að þeim verkefnum sem fram undan eru,“ sagði Wolff.

Ekki hefur verið staðfest hvar Wolff mun leika eftir að samningur hans við Kiel rennur út en VfL Gummersbach hefur ítrekað verið nefnt í umræðunni um framtíð markvarðarins.

Þýska handboltagoðsögnin Stefan Kretzschmar ræddi möguleg félagaskipti Wolff í hlaðvarpsþættinum Kretzsche & Schmiso á dögunum.

„Þetta er ekki opinbert en orðrómurinn er svo sterkur. Eftir að hafa heyrt þetta úr öllum áttum yrði ég nánast hissa ef Andi Wolff færi ekki til Gummersbach,“ sagði Kretzschmar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top