Styttist í endurkomu Hannesar
Kristinn Steinn Traustason

Það styttist í að Hannes Höskuldsson, vinstri hornamaður Selfoss, snúi aftur á handboltavöllinn eftir að hafa verið frá keppni vegna meiðsla. Hannes stefnir á endurkomu í næstu tveimur til þremur umferðum.

Hannes gekkst undir aðgerð um miðjan júní og hefur því ekki getað tekið þátt í leikjum Selfoss það sem af er tímabilinu.

Fyrir tímabilið ræddi Hannes við Handkastið um stöðuna og sagðist þá vonast til að geta snúið aftur einhvern tímann í október. Sú áætlun virðist ætla að ganga eftir.

„Endurhæfingin hefur gengið mjög vel. Ég er vonandi að byrja að æfa full contact í þessari viku og þá er bara spurning hvernig líkaminn bregst við álaginu og hvenær fyrsti leikurinn verður,“ sagði Hannes í samtali við Handkastið.

„Ég er að binda vonir við að vera mættur á völlinn í næstu tveimur til þremur umferðum.“

Endurkoma Hannesar yrði mikill liðsstyrkur fyrir Selfyssinga. Hann var langmarkahæsti leikmaður liðsins í Olís-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði 154 mörk.

Hannes er uppalinn á Selfossi og hefur um árabil verið einn öflugasti vinstri hornamaður deildarinnar.

Selfoss er enn í leit af sínum fyrsta sigri á tímabilinu en liðið fær Íslands- og deildarmeistara Vals í heimsókn í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins í kvöld klukkan 19:15.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top