Viktor Gísli glímt við veikindi – Segist verða klár í næsta leik
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður Íslands og leikmaður spænska stórliðsins Barcelona, hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins vegna veikinda sem hann varð fyrir á meðan liðið tók þátt á heimsmeistaramóti félagsliða í Egyptalandi á dögunum.

Viktor Gísli var meðal annars ekki í leikmannahópi Barcelona í gær þegar liðið vann Dinamo Búkarest, 34-27, í Meistaradeild Evrópu.

Í samtali við Handkastið staðfesti Viktor Gísli að hann hefði veikst undir lok dvalarinnar í Egyptalandi og að veikindin hefðu versnað eftir heimkomuna til Spánar.

„Ég fann fyrir slappleika seinustu tvo dagana í Egyptalandi og crashaði svo nóttina eftir að við lentum aftur á Spáni. Ég fékk einhverja veiru/bakteríusýkingu sem endaði í berkjubólgu. Ég fór á sýklalyf í tvo daga og varð strax betri,“ sagði Viktor Gísli í samtali við Handkastið.

Markvörðurinn er hins vegar allur að koma til og hefur þegar snúið aftur til æfinga, en hann æfði með varaliði Barcelona í gær.

„Ég æfði með varaliðinu í gær og geri ráð fyrir að vera klár í næsta leik,“ sagði Viktor Gísli.

Barcelona á næst leik gegn Villa de Aranda í spænsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn og vonast Viktor Gísli til að geta tekið þátt í þeim leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top