Ótrúlegt hvað hann er kominn snemma aftur út á völlinn
Instagram

Benedikt Gunnar Óskarsson lék sínar fyrstu mínútur fyrir TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni um helgina þegar liðið tapaði á heimavelli gegn Elvari Ásgeirssyni og félögum í Ribe-Esbjerg, 33–38.

Endurkoma Benedikts var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins en hann hefur verið frá keppni eftir alvarlegt slys á golfvelli í sumar.

Benedikt gekk til liðs við Holstebro frá norska meistaraliðinu Kolstad í júní og skrifaði undir eins árs samning við félagið, þar sem Arnór Atlason er þjálfari. Benedikt er uppalinn hjá Val og varð Noregsmeistari með Kolstad áður en hann hélt til Danmerkur.

Í sumarfríi hér á landi fékk Benedikt golfkúlu í höfuðið með þeim afleiðingum að hann höfuðkúpubrotnaði og missti samstundis mátt og tilfinningu í hægri hendinni. Hann dvaldi fjóra daga á sjúkrahúsi og tók síðan við endurhæfing á Grensás. Mikil óvissa ríkti um batann en Benedikt sagði í viðtali við Handkastið eftir atvikið að læknar hefðu ekki getað lofað honum að höndin næði fullri virkni á ný.

„Það eru gríðarlegar gleðifréttir að sjá hann aftur á vellinum. Maður hafði, eins og allir sem hafa fylgst með honum, miklar áhyggjur af honum enda ekkert grín að fá golfkúlu í höfuðið og missa mátt í hendinni. Þetta eru stórkostlegar fréttir og miklar gleðifréttir. Það ríkti mikil óvissa með þetta og þetta var ótrúlega erfitt en maður gladdist mikið við að lesa þessar fréttir,“ sagði Ásgeir Jónsson, gestur í Handkastinu.

Holstebro glímir við mikil meiðslavandræði um þessar mundir og Einar Ingi Hrafnsson telur að endurkoma Benedikts geti hjálpað liðinu.

„Mér finnst ótrúlegt hvað hann er kominn snemma aftur miðað við hversu mikið áfallið var og hversu mikla endurhæfingu hann þurfti eftir slysið. En hópurinn hjá Holstebro er ekki það stór og meiðslavandræðin eru mikil þannig að þeir verða að reyna að koma honum inn í spilið og veita honum mínútur. Það verður gaman að fylgjast með honum í framhaldinu,“ sagði Einar Ingi.

Holstebro mætir spænska liðinu Torrelavega í þriðju umferð Evrópudeildarinnar í kvöld. Bæði lið hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í riðlinum og eru með fullt hús stiga.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top