Íslensku liðin ferðast langmest í Evrópudeildinni
J.L.Long

Valur og FH verða bæði í eldlínunni í 3. umferð Evrópudeildar karla í kvöld. Íslensku liðin þurfa heldur betur að leggja land undir fót í Evrópukeppninni í vetur en ekkert lið ferðast jafn langt og FH og Valur í riðlakeppninni.

Valur tekur á móti ungverska liðinu Tatabánya í Valsheimilinu klukkan 18:45 í kvöld. Valsmenn eru með tvö stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en Tatabánya er enn án stiga.

Á sama tíma verður FH í eldlínunni gegn portúgalska liðinu Marítimo. FH-ingar hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum og eru án stiga en Marítimo er með tvö stig.

Evrópudeildin birti á dögunum áhugaverða samantekt yfir ferðalög liðanna 32 í riðlakeppninni. Hvert lið fer í þrjá útileiki og samanlagt er áætlað að liðin ferðist um 295.326 kílómetra á meðan riðlakeppninni stendur.

FH ferðast lengst allra liða, samtals 17.244 kílómetra, en Valur kemur þar á eftir með 15.713 kílómetra.

Marítimo, mótherji FH í kvöld, er í þriðja sæti listans með 14.834 kílómetra. Eyjaliðið frá Madeira þarf því einnig að ferðast langar vegalengdir í keppninni.

Skemmst ferðast Bosníuliðið HC Izviđač, eða samtals 5.031 kílómetra í þremur útileikjum sínum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top