Nikolaj Jacobsen myndi fórna öðrum handleggnum fyrir Lauge
Bo Amstrup /AFP

Óvissa ríkir um þátttöku danska landsliðsmannsins Rasmus Lauge á heimsmeistaramótinu í janúar en leikmaðurinn er frá keppni vegna beinbrots í kálfa.

Danski handboltasérfræðingurinn Bent Nyegaard telur að landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen muni leggja mikið á sig til að hafa Lauge með á mótinu, nái hann heilsu í tæka tíð.

Lauge, sem leikur með Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa brotið dálkbein. Þótt beinið nái að gróa fyrir heimsmeistaramótið er óvíst hvort hann nái að koma sér í nægilega gott leikform fyrir mótið.

Bent Nyegaard, sérfræðingur TV 2 Sport í Danmörku, telur þó engan vafa leika á mikilvægi Lauge fyrir danska landsliðið.

„Nikolaj Jacobsen myndi fórna öðrum handleggnum til þess að fá Rasmus Lauge með á HM, svo framarlega sem hann verður leikfær,“ segir Nyegaard í samtali við TV 2 Sport.

Lauge hefur um árabil verið einn af lykilmönnum danska landsliðsins og gegnt mismunandi hlutverkum. Á heimsmeistaramótinu árið 2019 var hann einn helsti leikstjórnandi liðsins og bar mikla ábyrgð í sóknarleiknum. Á síðustu árum hefur hlutverk hans hins vegar breyst. Á Evrópumótinu fyrr á þessu ári var hann í aukahlutverki á bak við stórstjörnurnar Mathias Gidsel og Simon Pytlick en gegndi engu að síður mikilvægu hlutverki í liðinu.

Einn helsti styrkleiki Lauge er að hann getur leikið bæði í vörn og sókn. Það gerir danska landsliðinu kleift að fækka skiptingum á milli varnar og sóknar og gefur Jacobsen meiri möguleika á að beita hröðum upphlaupum.

Það verður því ekki eingöngu kapphlaup við tímann fyrir Lauge að jafna sig af meiðslunum heldur þarf hann einnig að ná nægilegri leikæfingu til þess að sannfæra Jacobsen um að hann eigi sæti í landsliðshópnum fyrir heimsmeistaramótið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top