Haukar mæta Handball Esch frá Lúxemborg í tveimur leikjum í 2. umferð Evrópubikars karla um helgina. Báðir leikirnir fara fram á Ásvöllum í Hafnarfirði en þrátt fyrir frábæra byrjun Hauka á tímabilinu telja Lúxemborgarar sig eiga raunhæfa möguleika á að slá Hafnarfjarðarliðið úr keppni. Lúxemborgski fjölmiðillinn Tageblatt fjallaði um viðureignina eftir að dregið var í 2. umferð keppninnar í september. Þar kemur fram að íslenskur handbolti njóti mikillar virðingar en að Haukar séu þó langt frá því að vera ósigrandi. Miðillinn bendir á að Haukar hafi fallið úr leik gegn bosníska liðinu Izviđač í Evrópubikarnum árið 2025, eftir að hafa tapað báðum viðureignunum, 33-26 og 30-27. Esch mætti sama andstæðingi á síðustu leiktíð og féll sömuleiðis úr keppni eftir tvo tapleiki, 32-29 og 29-27. Tageblatt telur því að Haukar séu vissulega erfiður andstæðingur en að verkefnið sé vel viðráðanlegt fyrir Esch. Mikið vatn hefur þó runnið til sjávar síðan umfjöllunin birtist. Haukar hafa byrjað tímabilið af miklum krafti og unnið alla sjö leiki sína í Olís-deild karla. Liðið situr á toppi deildarinnar með fjórtán stig og vann meðal annars sextán marka stórsigur á Fram, 39-23, í síðustu umferð. Handball Planet birti auk þess nýverið styrkleikalista yfir sextán sigurstranglegustu lið Evrópubikarsins þar sem Haukar voru í níunda sæti. Spáir Haukum góði gengu í Evrópubikarnum Esch komst áfram úr fyrstu umferð keppninnar eftir tvo leiki gegn Tikveš frá Norður-Makedóníu. Lúxemborgarliðið vann fyrri leikinn 30-27 en tapaði þeim síðari 33-32 og fór því áfram samanlagt 62-60. Liðin hafa ekki mæst áður í Evrópukeppni en Haukar hafa áður átt í höggi við lið frá Lúxemborg. Árið 2005 mættu Haukar Berchem og unnu báða leikina, 33-23 og 34-25. Fyrri leikur Hauka og Esch fer fram á laugardaginn klukkan 16:00 en sá síðari á sunnudaginn klukkan 18:00. Báðir leikirnir fara fram á Ásvöllum þótt Esch teljist heimalið í fyrri viðureigninni. Frítt er á báða leikina. Samanlagður sigurvegari kemst áfram í 3. umferð Evrópubikarsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.