Frönsk landsliðskonan fótbrotnaði á æfingu
Attila KISBENEDEK / AFP

Franska landsliðskonan Lylou Borg sem leikur með franska stórliðinu Metz hefur orðið fyrir alvarlegu áfalli eftir að hafa fótbrotnað á æfingu með franska landsliðinu á mánudaginn. Ekki liggur fyrir hversu lengi hún verður frá keppni.

Borg, sem er 21 árs gömul, meiddist á hægri fæti á æfingu franska landsliðsins á mánudaginn. Hún gekkst undir rannsóknir síðar sama dag og staðfestu þær að um beinbrot væri að ræða.

Franska handknattleikssambandið staðfesti meiðslin í tilkynningu á þriðjudaginn og greindi jafnframt frá því að Borg hefði yfirgefið landsliðshópinn. Hún sneri aftur til Metz þar sem hún hefur hafið meðferð og endurhæfingu undir handleiðslu læknateymis félagsins.

Meiðslin koma á afar slæmum tíma fyrir Borg sem hefur verið að festa sig í sessi hjá bæði Metz og franska landsliðinu. Borg var valin besti ungi leikmaður tímabilsins 2025/26 hjá Handknattleikssambandi Evrópu, EHF, eftir frábæra frammistöðu með Metz í Meistaradeild Evrópu.

Hún hefur einnig fengið sífellt stærra hlutverk í sóknarleik franska stórliðsins á yfirstandandi tímabili. Nú ríkir hins vegar óvissa um hvort hún verði tilbúin fyrir Evrópumót kvenna sem hefst 3. desember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top