Foreldrar slógust fyrir framan börnin – Félögin dæmd í 21 heimaleik án áhorfenda
Sævar Jónasson

Rúmenska handknattleikssambandið hefur gripið til harðra agaviðurlaga eftir að foreldrar leikmanna slógust í áhorfendastúkunni á leik 15 ára stúlkna fyrr í þessum mánuði. Bæði félögin hafa verið dæmd til að leika næstu 21 heimaleiki sína í viðkomandi aldursflokki án áhorfenda.

Atvikið átti sér stað 4. október þegar LPS Banatul Timișoara og CSC Millenium Giarmata mættust í rúmensku U15 ára deildinni.

Óánægja með dómgæslu varð til þess að foreldrar leikmanna hófu að rífast í stúkunni. Deilurnar stigmögnuðust og enduðu með slagsmálum þar sem nokkrir foreldrar réðust hver á annan.

Myndskeið af atvikinu fór í dreifingu á samfélagsmiðlum og má þar sjá fullorðið fólk slást á meðan ungu handknattleikskonurnar fylgjast með af vellinum.

Lögregla hóf rannsókn á málinu og tveir menn voru handteknir og vistaðir í haldi í sólarhring vegna gruns um líkamsárás og röskun á almannafriði. Aganefnd rúmenska handknattleikssambandsins tók málið fyrir í vikunni og ákvað að beita bæði félögin þungum viðurlögum.

Félögin þurfa hvort um sig að leika 21 heimaleik án áhorfenda í U15 ára flokki kvenna. Refsingin tók gildi 14. október. Þá voru einnig dæmd leikbönn á dómara, starfsmenn við ritaraborð og þjálfara heimaliðsins vegna atvika tengdra leiknum.

Málið hefur vakið mikla athygli í Rúmeníu, ekki síst vegna þess að slagsmálin áttu sér stað fyrir framan börnin sem voru að keppa. Gestirnir í Millenium Giarmata unnu leikinn, 28-18, en úrslitin féllu algjörlega í skuggann af ólátunum í stúkunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top