Viktor Gísli í sigurliði á Spáni
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Tvö íslendingalið voru í eldlínunni á Spáni í gærkvöldi.

Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot í marki Barcelona þegar liðið vann 18 marka sigur á Cuenca í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi, 45-27.

Þorgils Jón Svölu Baldursson spilaði einnig með liði sínu Caserio Ciudad Real þegar liðið mátti þola fjögurra marka tap gegn Bidasoa Irun á útivelli, 36-32.

Þorgils Jón skoraði tvö mörk í leiknum.

Barcelona eru ennþá taplausir í deildinni eftir 6 umferðir en Caseiro eru í 7.sæti deildinnar þrátt fyrir að hafa tapað tveim leikjum í röð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top