Hanning breytti um lífsstíl eftir tap gegn Íslandi
Andreas Gora /AFP

Bob Hanning, framkvæmdastjóri þýska stórliðsins Füchse Berlin og landsliðsþjálfari Ítalíu, hefur greint frá því að hann hafi misst um 20% af líkamsþyngd sinni eftir að hafa tekið lífsstíl sinn í gegn. Hinn 58 ára gamli Hanning segir að reynsla hans á Evrópumótinu í handbolta fyrr á þessu ári hafi orðið til þess að hann ákvað að gera breytingar.

Hanning ræddi opinskátt um málið í nýjasta þætti þýska handboltahlaðvarpsins Hand aufs Harz þar sem hann var gestur Markus Götz.

Þar rifjaði Hanning meðal annars upp erfiða daga á Evrópumótinu í janúar þegar hann stýrði ítalska landsliðinu. Ítalir töpuðu meðal annars með fjórtán marka mun gegn Íslandi og segir Hanning að mikið álag hafi fylgt mótinu.

„Við spiluðum gegn Íslandi og töpuðum með fjórtán mörkum. Það var ansi þungt. Svo var maður kominn á hótelið klukkan hálftólf um kvöldið og fyrsta verkefnið var að byggja liðið upp aftur. Annað verkefnið var að horfa á leikinn okkar um nóttina og það þriðja að skoða leik næsta mótherja, Ungverjalands,“ sagði Hanning.

Ítalir luku keppni með sigri gegn Póllandi en voru þá þegar úr leik. Þrátt fyrir sigurinn segir Hanning að hann hafi verið gjörsamlega örmagna eftir mótið.

„Ég var svo búinn á því að ég hefði ekki getað tekið þrjá leiki til viðbótar með þær kröfur sem ég geri til sjálfs mín.“

Hanning segir að hann hafi áttað sig á því að hann þyrfti að bæta líkamlegt ástand sitt ef hann ætlaði að halda áfram að sinna krefjandi störfum sínum af fullum krafti. Hann ákvað því að breyta um lífsstíl og hefur síðan misst um fimmtung af líkamsþyngd sinni.

Hanning viðurkennir að hafa notað þyngdarstjórnunarlyf í sprautuformi sem hjálpartæki en leggur áherslu á að agi hafi skipt mestu máli.

„Ég hef í raun minnkað líkamsþyngd mína um 20%. Satt best að segja notaði ég sprautu sem hjálpartæki, en hún léttist ekki fyrir þig. Restin var mikil sjálfsagi.“

Hanning segist nú finna mikinn mun á sér og vera mun orkumeiri en áður.

„Maður þarf alltaf að geta gefið sig hundrað prósent í verkefnið fyrir leikmennina sína. Ég finn fyrir mikilli orku og stunda nú líka meiri hreyfingu.“

Hanning stefnir á að stýra ítalska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í janúar 2027 og vonast til að liðið komist lengra en í riðlakeppnina. Hann segir að breytingarnar hafi meðal annars verið gerðar með það í huga að geta tekist betur á við álagið sem fylgir stórmótum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top