Franska stórliðið Brest Bretagne virðist hvergi nærri hætt að styrkja leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil en félagið hefur nú áhuga á tveimur lykilleikmönnum Evrópumeistara Metz. Samkvæmt franska handknattleiksmiðlinum HandNews, sem vísar til heimilda L'Équipe, hefur Brest áhuga á að fá þær Lucie Granier og Laura Schneider til félagsins næsta sumar. Brest hefur þegar tryggt sér krafta norsku stórstjörnunnar Henny Reistad frá og með næsta tímabili og ljóst að félagið ætlar sér stóra hluti á næstu árum. Granier og Schneider hafa báðar verið mikilvægir leikmenn Metz, sem hefur verið eitt sterkasta félagslið Evrópu undanfarin ár. Óvissa ríkir um framtíð nokkurra leikmanna Metz en alls eru níu leikmenn félagsins að renna út á samningi næsta sumar. Forráðamenn félagsins standa því frammi fyrir mikilvægum ákvörðunum á næstu mánuðum. Þá hefur einnig verið rætt um framtíð Emmanuel Mayonnade, þjálfara Metz, en samkvæmt frönskum fjölmiðlum kemur til greina að hann framlengi samning sinn við félagið um eitt ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.