Fjöldaslagsmál brutust út í leik Bellinge IF og Østfyns HK í dönskum neðrideildarhandbolta á dögunum. Leiknum var hætt áður en honum lauk og hefur danska handknattleikssambandið nú gripið til agaviðurlaga gegn báðum félögum. Atvikið átti sér stað í Rasmus Rask-höllinni í Bellinge á Fjóni en liðin leika í Serie 1. Um 30 áhorfendur voru á leiknum, þar á meðal börn, þegar átökin brutust út. Samkvæmt frásögn Sebastian Jensen, þjálfara Østfyns HK, hófust átökin með orðaskiptum tveggja leikmanna áður en einn leikmaður Bellinge IF sló leikmann Østfyns HK þrisvar sinnum í andlitið. Í kjölfarið brutust út fjöldaslagsmál þar sem fleiri leikmenn blönduðust í átökin. Forsvarsmenn Bellinge IF hafa hins vegar lýst því að leikmenn beggja liða hafi látið hendur skipta, en Østfyns HK hefur mótmælt þeirri lýsingu. Því eru frásagnir félaganna af atvikinu ekki að öllu leyti samhljóða. Jensen ákvað í kjölfarið að lið hans myndi ekki halda leiknum áfram þar sem hann óttaðist um öryggi leikmanna sinna. Dansk Håndbold Syd hefur nú dæmt bæði lið töpuð í leiknum og sektað félögin um 3.000 danskar krónur hvort. Þá hafa tveir leikmenn verið dæmdir í fimm leikja bann. Jensen sagði í samtali við TV 2 Fyn að hann hefði aldrei upplifað annað eins á rúmlega 30 árum í handbolta. Málið gæti haft frekari afleiðingar en stjórn Bellinge IF hyggst funda um atvikið og taka afstöðu til þess hvort beita eigi leikmenn félagsins frekari viðurlögum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.