Haukar tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópubikars karla í kvöld eftir öruggan 31-24 sigur á Handball Esch frá Lúxemborg í síðari viðureign liðanna á Ásvöllum. Hafnfirðingar höfðu unnið fyrri leikinn með tuttugu marka mun, 41-21, í gær og unnu því einvígið samanlagt með 27 marka mun, 72-45. Báðir leikir liðanna fóru fram á Ásvöllum en fyrri leikurinn taldist heimaleikur Esch þrátt fyrir að hafa farið fram í Hafnarfirði. Haukar mættu til leiks með afar þægilegt forskot eftir stórsigurinn í gær en héldu áfram þar sem frá var horfið. Haukar leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 15-10, og fögnuðu að lokum sjö marka sigri, 31-24. Sigurður Snær Sigurjónsson var markahæstur Hauka í kvöld með sjö mörk úr tíu skotum en Daníel Máni Sigurgeirsson kom næstur með sex mörk úr átta skotum. Össur Haraldsson, sem skoraði þrettán mörk í fyrri leiknum, bætti við fjórum mörkum í kvöld. Aron Rafn Eðvarðsson átti frábæra innkomu í mark Hauka og varði átta af þrettán skotum sem hann fékk á sig, eða 61,5% markvörslu. Ari Dignus Maríuson varði tíu skot og var með 34,5% markvörslu. Evrópuævintýri Hauka heldur því áfram og er liðið komið í 32-liða úrslit Evrópubikarsins. Markaskorarar Hauka: Sigurður Snær Sigurjónsson 7, Daníel Máni Sigurgeirsson 6, Össur Haraldsson 4, Helgi Marinó Kristófersson 3, Birkir Snær Steinsson 3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 3, Ólafur Ægir Ólafsson 3, Hjörtur Ingi Halldórsson 1 og Arnór Róbertsson 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.