Harðverjar með góðan heimasigur á Ísafirði
Sævar Jónasson

Hörður Ísafirði og Fram 2 mættust í dag í Grill 66 deild karla en leikurinn fór fram í Íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði.

Það var ekki að sjá á Frömurum að bílferðin vestur hafi setið mikið í þeim í byrjun leiks því þeir komust í 1-4 og svo 5-8. Þeir voru mun sprækari fyrstu 20 mínúturnar.

Harðverjar náðu svo að jafna í 8-8 á 22 mínútu leiksins en Framarar voru betri á lokaspretti fyrri hálfleiks og voru yfir 10-11 þegar gengið var til búningsherbergja.

Fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik voru mjög jafnar en þá skildu leiðir og Harðverjar náðu að taka yfir leikinn. Komust þeir í 26-21 þegar 7 mínútur voru eftir og Framarar höfðu ekki nægilega mikið á tanknum til að jafna leikinn.

Lokatölur 29-25 fyrir heimamenn í Herði. Eru þeir komnir með 8 stig í 7 leikjum og tylltu sér upp í 5. sæti með sigrinum í dag.

Hjá Herði var Pétur Þór Jónsson markahæstur með 7 mörk. Hermann Alexander Hákonarson varði 14 skot.

Hjá Fram 2 var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 13 mörk. Jóhann Ágústsson varði 12 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top