Guðmundur Bragi á eldi – Íslendingar í eldlínunni um helgina
8ERNER

Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni með félagsliðum sínum víðs vegar um Evrópu um helgina.

Guðmundur Bragi Ástþórsson stal senunni í Austurríki, Óðinn Þór Ríkharðsson fór á kostum í Íslendingaslag í Sviss og Úlfar Páll Monsi Þórðarson tryggði sér sæti í næstu umferð Evrópubikarsins.

Guðmundur Bragi Ástþórsson átti stórleik þegar Bregenz vann gríðarlega mikilvægan 35-34 sigur á nágrönnum sínum í Alpla Hard í austurrísku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Guðmundur Bragi var markahæstur allra leikmanna með þrettán mörk og skoraði sjö þeirra í síðari hálfleik. Jón Ómar Gíslason var einnig í leikmannahópi Bregenz en komst ekki á blað.

Staðan var jöfn í hálfleik, 17-17, en Bregenz byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og náði fjögurra marka forskoti. Hard tókst að minnka muninn en Bregenz hélt út og vann sinn fyrsta sigur gegn nágrönnum sínum síðan í maí 2022.

Með sigrinum fór Bregenz upp í fjórða sæti deildarinnar með níu stig eftir átta leiki.

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu öruggan ellefu marka sigur á GC Amicitia Zürich, 37-26, í svissnesku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Óðinn Þór átti frábæran leik og skoraði átta mörk úr níu skotum fyrir Kadetten sem leiddi 19-13 í hálfleik.

Birgir Már Birgisson skoraði tvö mörk fyrir Zurich sem er í 7.sæti deildarinnar með átta stig. Kadetten er á toppi svissnesku úrvalsdeildarinnar með 21 stig.

Úlfar Páll Monsi Þórðarson og félagar í Alkaloid frá Norður-Makedóníu tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins eftir öruggan 32-18 útisigur á Ferlach í Austurríki á laugardaginn.

Úlfar Páll Monsi skoraði tvö mörk í leiknum en Alkaloid hafði unnið fyrri viðureign liðanna 31-22 á heimavelli. Alkaloid vann því einvígið samanlagt 63-40 og er komið örugglega áfram í næstu umferð keppninnar.

Sveinn Jóhannsson og félagar í Chambéry máttu þola tólf marka tap gegn Nantes í frönsku úrvalsdeildinni á laugardaginn, 41-29.

Chambéry byrjaði leikinn ágætlega en Nantes náði sex marka forskoti fyrir hálfleik, 21-15. Heimamenn bættu jafnt og þétt við forskotið í síðari hálfleik og unnu að lokum öruggan sigur. Sveinn Jóhannsson var ekki á meðal markaskorara Chambéry í leiknum.

Bjarki Már Elísson og félagar í Paris Saint-Germain unnu stórsigur á Saint-Raphaël, 42-28, í frönsku úrvalsdeildinni. Parísarliðið heldur þar með áfram góðu gengi sínu í frönsku deildinni. Bjarki Már skoraði tvö mörk í leiknum en Noah Gaudin var markahæstur með sex mörk.

Breki Hrafn Árnason og félagar í Benfica töpuðu naumlega gegn Marítimo, 27-28, í portúgölsku úrvalsdeildinni. Aðeins eitt mark skildi liðin að þegar upp var staðið og Benfica varð því að sætta sig við tap. Marítimo er með FH í riðli í Evrópudeildinni.

Orri Freyr Þorkelsson skoraði tvö mörk þegar Sporting Lissabon vann öruggan tólf marka sigur á Póvoa, 43-31, í portúgölsku úrvalsdeildinni. Sporting heldur þar með áfram sigurgöngu sinni í portúgölsku deildinni en liðið er á toppi deildarinnar með 27 stig, jafn mörg stig og Porto.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top