Afturelding verður án Harra Halldórssonar í næstu tveimur leikjum liðsins í Olís-deild karla eftir að hann meiddist í tapinu gegn KA í síðustu umferð. Þetta staðfesti Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar, í samtali við Handkastið. Harri meiddist undir lok leiksins gegn KA og gat ekki tekið þátt í lokamínútunum. Nú er ljóst að hann verður frá keppni næstu eina til tvær vikurnar og missir því af leikjum Aftureldingar gegn Þór og Val. „Harri er með smá tognun í vöðva hjá hnénu og verður örugglega frá í 1–2 vikur,“ sagði Hrannar í samtali við Handkastið. Áhyggjurnar eru þó ekki síður miklar vegna Hákons Daða Styrmissonar, sem meiddist einnig í leiknum gegn KA. Hákon Daði þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik og kom ekkert meira við sögu. Mosfellingar bíða enn eftir niðurstöðum úr myndatöku sem Hákon Daði fór í en óttast er að hann hafi slitið krossband. Ekki liggur þó fyrir staðfest niðurstaða um alvarleika meiðslanna. Það yrði mikið áfall fyrir Aftureldingu ef Hákon Daði reynist vera með alvarleg hnémeiðsli, ekki síst þar sem liðið hefur nú þegar misst Harra úr leik tímabundið. Afturelding fær Þór í heimsókn á morgun í 8. umferð Olís-deildar karla og mætir síðan Val í 9. umferð næstkomandi laugardag. Að þeim leik loknum tekur við landsleikjahlé í deildinni og því gæti Harri nýtt hléið til að jafna sig á meiðslunum áður en deildarkeppnin heldur áfram. Rætt var um meiðslin og hitað upp fyrir komandi umferð í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.