Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, var að vonum ánægður eftir frábæran 31-30 sigur liðsins á toppliði Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Þetta var fyrsta tap Flensburg í deildinni á tímabilinu en lærisveinar Guðjóns Vals sýndu mikinn karakter og tryggðu sér sigurinn í æsispennandi leik. Danski markvörðurinn Bertram Obling átti stórleik í marki Gummersbach og varði 19 skot í leiknum. Guðjón Valur var sérstaklega ánægður með frammistöðu hans. „Ég er stoltur og ánægður með að hafa unnið lið eins og Flensburg. Það sást vel hversu mikil gæði eru í þeirra liði,“ sagði Guðjón Valur eftir leikinn. „Ég held að við séum öll sammála um að þetta hefði ekki verið mögulegt án frábærrar frammistöðu Bertram Obling. Okkur tókst að stilla upp góðri vörn og vinna bolta, en 19 varin skot eru ekkert sjálfsögð. Hann á því gríðarlega stóran þátt í þessum sigri.“ Guðjón Valur sagði að liðið hefði átt í ákveðnum erfiðleikum gegn 6-0 vörn Flensburg í fyrri hálfleik, ekki síst vegna þess hvernig gestirnir tóku á leikstjórnanda Gummersbach. „Með góðum varnarleik tókst okkur hins vegar að breyta stöðunni okkur í hag. Í síðari hálfleik gerðum við margt vel en lentum síðan í slæmum kafla þar sem Flensburg gat skorað nánast að vild.“ Guðjón Valur sagði að lokakaflinn hefði verið gríðarlega spennandi og að Obling hefði reynst liðinu ómetanlegur þegar mest á reyndi. „Þetta var spennandi leikur þar sem við vorum heppnari í lokin. Bertram varði mikilvægu skotin og okkur tókst síðan að skora hinum megin.“ Nikola Roganović var markahæstur Gummersbach með tólf mörk en íslensku leikmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Garðar Ingi Sindrason skoruðu tvö mörk hvor. Teitur Örn Einarsson var einnig í leikmannahópi Gummersbach. Gummersbach er með tíu stig eftir níu leiki og situr í níunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.