Útilokar ekki að velja Jóhönnu Margréti í EM hópinn
Sævar Jónasson

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins útilokar ekki að Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, leikmaður Hauka, verði í lokahópi Íslands fyrir komandi stórmót þrátt fyrir að hafa ekki verið valin í síðasta landsliðshóp.

Mikil umræða hefur skapast um fjarveru Jóhönnu úr landsliðshópnum en hún hefur farið á kostum með Haukum í Olís-deild kvenna á tímabilinu. Jóhanna Margrét er markahæsti leikmaður deildarinnar með 64 mörk, þrettán mörkum meira en næstu leikmenn á markalistanum.

Arnar var spurður út í gagnrýnina á landsliðsvalið í viðtali við mbl.is og sagðist skilja vel að fólk hefði skoðanir á ákvörðuninni.

„Ég skil þá gagnrýni og það er gott að fólk hafi skoðun á þessu,“ sagði Arnar við mbl.is.

Landsliðsþjálfarinn hrósaði Jóhönnu fyrir frammistöðu hennar með Haukum en benti jafnframt á að hann hefði hingað til ákveðið að fara aðrar leiðir við val á leikmönnum.

„Hún er búin að standa sig virkilega vel í deildinni heima með Haukum og vonandi heldur það áfram. Fram að þessu hef ég farið aðrar leiðir og við sjáum hvað gerist.“

Arnar lagði áherslu á að lokahópurinn fyrir stórmótið hefði ekki enn verið valinn og að Jóhanna væri áfram inni í myndinni.

„Ég er ekki búinn að velja hópinn fyrir lokamótið og við sjáum hvernig það þróast. Hún hefur komið til greina hingað til og gerir það áfram,“ sagði Arnar Pétursson í samtali við mbl.is.

Ljóst er að frammistaða Jóhönnu Margrétar með Haukum hefur vakið mikla athygli en það verður að koma í ljós hvort markadrottning Olís-deildarinnar nái að vinna sér sæti í lokahópi Íslands.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top