Hollendingar verða fyrir áfalli fyrir EM
BO AMSTRUP /AFP

Hollenska kvennalandsliðið hefur orðið fyrir miklu áfalli í aðdraganda Evrópumótsins sem hefst í desember en landsliðskonan Larissa Nüsser hefur slitið krossband og missir því af mótinu.

Nüsser varð fyrir meiðslunum í vináttulandsleik Hollands gegn Noregi á Golden League-mótinu um síðustu helgi. Hún meiddist á fyrstu mínútum leiksins og þurfti að yfirgefa völlinn áður en langt var liðið á viðureignina.

Hollenska handknattleikssambandið hefur staðfest að niðurstöður segulómunar hafi leitt í ljós krossbandsslit. Nüsser greindi sjálf frá niðurstöðunum og lýsti miklum vonbrigðum með að missa af stórmótinu.

„Ég var rétt í þessu að fá niðurstöður úr segulómuninni og því miður eru fréttirnar ekki góðar. Ég er gríðarlega leið yfir því að geta ekki leikið með hollenska landsliðinu næstu misserin,“ sagði Nüsser sem leikur með Gloria Bistrita í Rúmeníu.

Hún bætti við að hún hefði hlakkað mikið til að taka þátt í Evrópumótinu með liðsfélögum sínum en myndi nú styðja þær að heiman. Meiðslin eru mikið áfall fyrir hollenska landsliðið sem er nú í lokaundirbúningi sínum fyrir Evrópumótið.

Ekki liggur fyrir hversu lengi Nüsser verður frá keppni en krossbandsslit krefjast jafnan langrar endurhæfingar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top