Áhugaverð umræða hefur skapast í Danmörku um hvernig danska handknattleikssambandið eigi að styðja við landsliðskonur sem eiga ung börn og vilja halda áfram að leika með landsliðinu. Nokkrar af þekktustu landsliðskonum Dana hafa eignast börn á undanförnum árum og hefur það vakið spurningar um hvernig haga eigi þátttöku þeirra í landsliðsverkefnum og á stórmótum. Þar á meðal eru Sandra Toft, Rikke Iversen og Kathrine Heindahl sem allar hafa þurft að samræma móðurhlutverkið og feril sinn. Samkvæmt umfjöllun danskra fjölmiðla hefur danska handknattleikssambandið ekki mótað fasta stefnu um hvort börn landsliðskvenna geti fylgt þeim á stórmót eða hvernig staðið skuli að slíkum málum. Morten Henriksen, íþróttastjóri danska handknattleikssambandsins, segir að sambandið hafi hingað til reynt að finna einstaklingsbundnar lausnir í samráði við leikmenn. Sofie Bæk, handboltasérfræðingur TV 2 Sport, telur hins vegar að tímabært sé að móta skýrari stefnu svo leikmenn viti hvaða stuðningur standi þeim til boða. Norska handknattleikssambandið hefur meðal annars ákveðið að verja fjármunum til þess að auðvelda landsliðskonum að hafa börn sín með í landsliðsverkefnum. Umræðan er einnig áhugaverð í íslensku samhengi en íslenskar landsliðskonur hafa á undanförnum árum snúið aftur til keppni eftir barnsburð. Sandra Erlingsdóttir er hinsvegar eini leikmaður íslenska landsliðsins um þessar mundir sem hefur eignast barn en stutt er síðan fleiri mæður léku með íslenska landsliðinu meðal annars Þórey Rósa Stefánsdóttir, Steinunn Björnsdóttir, Sunna Jónsdóttir, Karen Knútsdóttir sem allar hafa lagt skóna á hilluna. Þórey Anna Ásgeirsdóttir eignaðist sitt annað barn fyrir skemmstu og gæti snúið aftur í landsliðið eftir áramót.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.