Max Darj, fyrirliði Füchse Berlin, er á óskalista Rhein-Neckar Löwen samkvæmt frétt þýska miðilsins Sport Bild í dag. Sænski línumaðurinn mun yfirgefa Berlínarliðið að loknu yfirstandandi tímabili. Samkvæmt heimildum Sport Bild hefur Löwen mikinn áhuga á að fá hinn 35 ára gamla varnarmann til liðs við sig. Darj gæti því haldið áfram í þýsku úrvalsdeildinni þótt dvöl hans hjá Füchse ljúki næsta sumar. Füchse hefur ákveðið að nýta ekki möguleika á að framlengja samning Darj, sem rennur út sumarið 2027. Darj hefur viðurkennt að ákvörðunin hafi valdið honum vonbrigðum enda hafi hann viljað vera áfram hjá félaginu. Hann hyggst þó halda ferlinum áfram og mun ákveða næstu skref í samráði við eiginkonu sína. Hjá Löwen er Haukur Þrastarson samningsbundinn til ársins 2028 og Elvar Örn Jónsson gengur til liðs við félagið næsta sumar. Darj gæti því orðið liðsfélagi íslensku landsliðsmannanna tveggja ef félagaskiptin ganga eftir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.