Dagmar yfirgefur Fram og heldur á Nesið
Grótta sport

Dagmar Guðrún Pálsdóttir hefur gengið til liðs við Gróttu á láni frá Fram. Grótta tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

Dagmar er tvítug og kemur frá Fram þar sem hún er uppalin. Hún hefur verið viðriðin öll yngri landslið Íslands og því félagaskiptin mikill hvalreki fyrir Gróttu. Á seinasta leiktímabili skoraði Dagmar 82 mörk fyrir Fram.

,,Dagmar er kvik örvhent skytta sem á eftir reynast Gróttuliðinu vel í vetur," segir í tilkynningunni frá Gróttu. Dagmar gerði í sumar þriggja ára samning við Fram.

"Ég er virkilega ánægður með að Dagmar sé gengin til liðs við okkar sterka leikmannahóp. Dagmar er dugleg og metnaðarfullur leikmaður sem verður gaman að sjá blómstra í Gróttutreyjunni", sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari kvennaliðs við undirritun samningsins.

Grótta er með fjögur stig í Olís-deild kvenna að loknum sex umferðum í 6.sæti deildarinnar. Dagmar hefur skorað sex mörk fyrir Fram á tímabilinu. Fyrsti leikur Dagmars með Gróttu verður á laugardaginn þegar Grótta tekur á móti ÍBV í lokaleik 7.umferðarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top