Ljubomir Vranjes, íþróttastjóri þýska úrvalsdeildarfélagsins Flensburg-Handewitt, útilokar ekki að þýski landsliðsfyrirliðinn Johannes Golla snúi aftur til félagsins þrátt fyrir að hafa aðeins gengið í raðir MT Melsungen í sumar. Félagaskipti Golla hafa verið mikið til umræðu í þýskum handbolta síðustu vikur eftir að í ljós kom að línumaðurinn vildi snúa aftur til Flensburg af fjölskylduástæðum. Golla lék með Flensburg í átta ár áður en hann samdi við Melsungen til ársins 2031. Nú, aðeins nokkrum mánuðum eftir félagaskiptin, er hann þegar farinn að horfa til baka til síns gamla félags. Vranjes staðfesti í samtali við þýska miðilinn handball-world að Flensburg væri tilbúið að taka Golla aftur, gefist tækifæri til þess. „Við styðjum að sjálfsögðu Johannes og fjölskyldu hans. Ef möguleiki gefst á að hann snúi aftur erum við opnir fyrir því. Það er ákvæði í samningnum og ef Johannes nýtir sér það erum við að sjálfsögðu tilbúnir,“ sagði Vranjes. Hann tók þó skýrt fram að engar viðræður stæðu yfir um endurkomu leikmannsins eins og staðan væri núna. Samningur Golla við Melsungen inniheldur uppsagnarákvæði sem gæti gert honum kleift að yfirgefa félagið fyrr en samningstíminn segir til um. Samkvæmt þýskum fjölmiðlum er þó talið að ákvæðið taki ekki gildi fyrr en árið 2028 eða jafnvel 2029. Vranjes lagði áherslu á að Golla og forráðamenn Melsungen þyrftu fyrst að finna lausn á sínum málum áður en Flensburg gæti tekið næstu skref. „Við erum tilbúnir ef tækifæri gefst,“ sagði Vranjes. Hann sagðist jafnframt ekki telja að fjárhagslegar ástæður lægju að baki ósk Golla um að snúa aftur. Málið snerist fyrst og fremst um líðan fjölskyldu hans.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.