Julien Deljarry, forseti franska stórliðsins Montpellier, hefur ekki farið leynt með óánægju sína með frammistöðu liðsins á tímabilinu en Montpellier kemst ekki áfram í Meistaradeild Evrópu en liðið er aðeins með tvö stig að loknum fimm leikjum í riðlakeppninni. Montpellier tekur á móti Dinamo Bucuresti í lokaleik riðilsins í kvöld en Dinamo Bucuresti á enn möguleika á að ná Skanderborg Arhus að stigum, með sigri í kvöld. Montpellier, sem hefur tvívegis orðið Evrópumeistari í handbolta, árin 2003 og 2018, hefur átt erfitt uppdráttar í Meistaradeildinni í haust. Liðið tapaði meðal annars báðum viðureignum sínum gegn danska liðinu Skanderborg Aarhus, fyrst 36-32 og síðan 38-30. Þau úrslit reyndust dýrkeypt í baráttunni um áframhaldandi þátttöku. Vonbrigðin urðu síðan endanleg þegar Montpellier tapaði gegn Barcelona á útivelli, 40-34, og missti þar með möguleikann á að komast áfram í milliriðilinn. Deljarry hefur áður gagnrýnt frammistöðu leikmanna sinna opinberlega og látið í ljós óánægju með það sem hann telur skorta innan leikmannahópsins. „Það eru vandamál í búningsklefanum. Ef einhverjir hafa ekki ástríðu fyrir þessu geta þeir farið,“ sagði Deljarry í samtali við beIN Sports fyrr í október. Ummælin vöktu athygli í Frakklandi en þau komu í kjölfar erfiðrar byrjunar liðsins og viðræðna þjálfarateymisins við leikmenn. Montpellier er eitt sigursælasta félagslið Frakklands og hefur lengi gert miklar kröfur til árangurs í Evrópukeppnum. Erick Mathé, þjálfari liðsins, stendur því frammi fyrir því verkefni að koma Montpellier aftur á réttan kjöl eftir vonbrigðin í Meistaradeildinni. Montpellier er í 3.sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 12 stig, fjórum stigum á eftir toppliði PSG að loknum átta umferðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.