Erum sjálfum okkur verstir
HSB Photo

Sigurður Páll Matthíasson, línumaður Víkings, var allt annað en sáttur eftir eins marks tap liðsins 29-30, gegn ÍBV í 8. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Víkingar eru með fjögur stig eftir fyrstu átta leiki tímabilsins og segir Sigurður Páll að liðið þurfi að fara að sýna sitt rétta andlit.

„Ég er ógeðslega pirraður. Í annað skiptið í vetur erum við að henda frá okkur jöfnum leik. Mér finnst við ekki vera að tapa þessum leikjum af því að við erum yfirspilaðir heldur erum við sjálfum okkur verstir og erum að tapa boltanum alltof auðveldlega og náum ekki að skila okkur til baka,“ sagði Sigurður Páll í samtali við Handkastið eftir leikinn.

Víkingar náðu að gera lokamínútur leiksins spennandi en Sigurður Páll segir að slök frammistaða liðsins lengst af hafi orðið því að falli. Hann vill ekki meina að tapið hafi ráðist á lokakaflanum.

„Það er ekki fyrr en síðustu tíu mínúturnar sem við kveikjum aðeins á okkur og gerum þetta að einhverjum leik. En við vorum búnir að spila illa fyrstu 50 mínúturnar fram að því og þessi leikur tapast ekki á neinu undir lokin heldur tapast hann á lélegum 50 mínútum hjá okkur.“

Víkingur á einn leik eftir áður en hlé verður gert á deildinni en liðið mætir Fram á sunnudaginn. Sigurður Páll segir að Víkingar hafi sýnt í nokkrum leikjum í vetur hvers þeir séu megnugir en að sú frammistaða þurfi að sjást oftar.

„Við þurfum að byrja að sýna okkar rétta andlit. Við höfum gert það 2–3 sinnum í vetur og bæði á móti KA í bikar og Þór og Selfossi, leikjum sem við unnum, þá hefur karakterinn verið góður í liðinu.“

„Það er einn leikur eftir fram að pásu og við þurfum heldur betur að slípa okkur betur saman fyrir hann,“ sagði Sigurður Páll Matthíasson að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top