Haukar héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís-deild kvenna í kvöld þegar liðið lagði Fram að velli, 29-26, á heimavelli Fram. Haukar eru því enn taplausar á toppi deildarinnar með fullt hús stiga á meðan Fram tapaði sínum þriðja leik í röð. Fram byrjaði leikinn af krafti og komst í 6-2 á fyrstu tólf mínútunum. Heimakonur héldu áfram góðum tökum á leiknum og náðu mest sjö marka forskoti í stöðunni 9-2. Haukar náðu hins vegar að vinna sig inn í leikinn á nýjan leik. Gestirnir skoruðu átta mörk gegn einu marki Fram og minnkuðu muninn í 10-9. Fram var einu marki yfir í hálfleik, 14-13. Síðari hálfleikurinn byrjaði af mikilli spennu. Haukar jöfnuðu í 16-16 og komust síðan yfir í 17-16. Fram jafnaði í 18-18 en Haukar tóku aftur frumkvæðið og náðu tveggja marka forskoti í 20-18. Þegar um stundarfjórðungur var eftir voru Haukar komnar fjórum mörkum yfir í 24-20. Fram náði að minnka muninn í 25-22 en Haukar svöruðu og komust í 27-22 þegar tæpar níu mínútur voru eftir. Fram náði að minnka muninn í tvö mörk, 28-26, þegar rúmar fimm mínútur voru eftir. Heimakonur náðu hins vegar ekki að komast nær og Berta Rut Harðardóttir skoraði síðasta mark leiksins fyrir Hauka sem fögnuðu þriggja marka sigri, 29-26. Það sem vakti sérstaka athygli var að Haukar töpuðu boltanum alls 20 sinnum í leiknum en náðu engu að síður að tryggja sér sigurinn. Þar munaði miklu um frábæra frammistöðu Söru Sif Helgadóttur í marki Hauka sem varði 16 skot og átti stóran þátt í að gestirnir fóru með bæði stigin heim. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst Hauka með 12 mörk. Embla Steindórsdóttir og Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoruðu þrjú mörk hvor. Hjá Fram var Sóldís Rós Ragnarsdóttir markahæst með átta mörk og Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði sex. Katrín Anna Ásmundsdóttir bætti við fjórum mörkum. Ethel Gyða Bjarnasen varði sex skot í marki Fram. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.