Bergvin Haraldsson, þjálfari ÍBV, var ánægður með sína menn eftir eins marks sigur liðsins gegn Víkingi í kvöld. Lokatölur 29-30 ÍBV í vil. „Þetta er frábært og ég er ánægður með peyjana. Þeir stóðu sig ótrúlega vel, góð barátta og mikið spirit. Þetta var frábær sigur,“ sagði Bergvin í samtali við Handkastið. Meiðsli hafa sett svip sinn á lið ÍBV en Bergvin sér stíganda í spilamennskunni og vonast til að endurheimta leikmenn fyrir næsta leik gegn Stjörnunni. „Bara vel, það er stígandi í þessu og við erum að spila þokkalegan handbolta. Það eru mikil meiðsli í hópnum og vonandi förum við að fá einhverja leikmenn til baka. Kannski fáum við einhverja til baka fyrir Stjörnuleikinn.“ Bergvin lætur vel af fyrstu vikunum í starfi hjá ÍBV og segir andann í hópnum góðan. „Fyrstu vikurnar hafa verið frábærar. Þetta hefur gengið vel og góður mórall í hópnum. Þetta hefur verið fínt,“ sagði Bergvin.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.