Sävehof mistókst að endurheimta toppsætið
Guðmundur Svansson

Það var tvíhöfði í Partille Arena í kvöld en bæði kvennalið og karlalið Sävehof áttu leik en karlamegin var boðið upp á Íslendingaslag og í Danmörku féllu Horsens úr leik í danska bikarnum.

Katrín Tinna Jensdóttir skoraði eitt mark úr þremur skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir Horsens þegar liðið féll úr leik í danska bikarnum eftir tap á heimavelli gegn Sønderjyske, 33-36.

Í Svíþjóð unnu meistarar Sävehof stórsigur á Hallby á heimavelli, 36-24 í sænsku kvennadeildinni en Elín Klara Þorkelsdóttir átti flottan leik fyrir heimakonur og skoraði sjö mörk úr níu skotum en þar af komu þrjú úr vítum. Hún bætti við tveimur stoðsendingum og fékk eina brottvísun að auki. Sävehof eru í öðru sæti deildarinnar ásamt þremur öðrum liðum með sex stig eftir fjórar umferðir. Västerås eru efstar með fullt hús stiga eða átta stig.

Seinni leikur kvöldsins í Partille Arena var Íslendingaslagur þegar Birgir Steinn Jónsson og félagar í Sävehof tóku á móti Amo með Arnar Birkir Hálfdánsson innanborðs. Fyrr um kvöldið hafði Malmö farið upp í toppsæti deildarinnar eftir jafntefli gegn Hammarby og því gátu heimamenn endurheimt toppsætið með sigri.

Það tókst þó ekki því gestirnir unnu gríðarlega öruggan og óvæntan stórsigur, 21-31. Birgir Steinn skoraði fimm mörk úr tíu skotum fyrir heimamenn á meðan Arnar Birkir skoraði tvö mörk úr fimm skotum og fékk eina brottvísun fyrir gestina. Þetta var fyrsta tap Sävehof í ár en þeir sitja í öðru sæti deildarinnar ásamt Kristianstad en bæði lið erum með tíu stig eftir sex leiki. Amo fór upp í fjórða sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Hammarby en bæði lið eru með níu stig.

Úrslit kvöldsins:

Horsens 33-36 Sønderjyske

Sävehof 36-24 Hallby

Sävehof 21-31 Amo

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top