Stymmi spáir í spilin: 5. umferð Olís deild karla

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 5.umferð fari í Olís deild karla.

KA– ÍBV (Fimmtudagur 18:00) / Sigurvegari: KA

ÍBV mæta til leiks með nýjan þjálfara í brúnni eftir að Erlingur Richardsson tók við þýska liði Minden í byrjun vikunnar. Fá þeir þetta „new manager bounch“ sem er þekkt í íþróttum um allan heim? KA voru frábærir gegn Val í síðustu umferð og léku við hvern sinn fingur og áttu Bjarna Ófeig inni. Ég held að þeir haldi uppteknum hætti á heimavelli og ÍBV fari tómhentir heim.

Haukar - Víkingur (Fimmtudagur 19:00) / Sigurvegari: Haukar

Haukar með fullt hús á toppi deildinnar meðan Víkingar komust loksins á blað í síðust umferð eftir frábæran sigur á Þór. Eins og ég hef sagt í allan vetur þá finnst mér Haukar vera langbesta lið deildinnar og verða of stór biti fyrir Víking í leik kvöldsins.  

Fram - Afturelding (Fimmtudagur 20:30) / Sigurvegari: Afturelding

Skemmtilegur nágrannaslagur, oft kallaður baráttan um Bauhaus. Fram hafa verið virkilega slakir undanfarið og Einar Jónsson var myrkur í máli eftir leik liðsins gegn Stjörnunni í síðasta leik. Afturelding hafa komið mér á óvart í upphafi tímabils og verið eitt heitasta lið deildinnar eftir fjórar umferðir. Afturelding mun vinna þennan leik með minnsta mun þar sem úrslitin muni ráðast á lokasekúndunum leiksins.  

Valur - Þór (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: Valur

Valsmenn fá Þórsara í heimsókn áður en þeir halda á Evrópurúntinn sinn. Þórsara eru eflaust svekktir með að hafa tapað tveim stigum gegn Víking í síðustu umferð eftir að hafa verið búnir að vinna sig inn í leikinn. Valsmenn hafa verið heillum horfnir á heimavelli í vetur en ég held þeir nái að snúa við blaðinu í leiknum á föstudaginn og halda með sigur í farteskinu í þessa tvo útileiki í Evrópudeildinni.

Selfoss - FH (Laugardagur 19:30) / Sigurvegari: FH

Selfyssingar áttu erfitt uppdráttar gegn Aftureldingu í síðsta leik og stóð ekki steinn við steini í varnarleik liðsins. FH eru mættir heim eftir Evrópuævintýri á Spáni og það er spurning hvort það muni sitja eitthvað í hópnum. Ég held þó að Selfoss verði ekki of mikil fyrirstaða fyrir þá á laugardaginn en það væri virkilega gaman að sjá heimamenn flykkjast á völlinn á þessum skemmtilega leiktíma og gefa sínum mönnum í Selfossi smá auka orku úr stúkunni.

HK – Stjarnan (Sunnudagur 18:00) / Sigurvegari: Stjarnan

Áhugaverðasti leikur umferðinnar að mínu mati. Sannkallaður fjögurra stiga leikur í baráttunni í neðri helming deildinnar. Bæði lið unnu frábæra sigra í síðustu umferð og koma því með mikið sjálfstraust inn í þennan leik. Leikir þessara liða undanfarin ár hafa oft verið mikil skemmtun og ég held það verði engin breyting á sunnudaginn. Ég held að hópurinn hjá Stjörunni sé ögn sterkari á þessu stigi tímabilsins og þeir fari upp í Kórinn og fari með tvö dýrmæt stig heim í Garðabæinn.   

1.umferð (6 réttir)
2. umferð (4 réttir)
3.umferð (4 réttir)
4.umferð (1 réttur)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top