Stymmi spáir í spilin: 3. umferð Olís deild karla

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 3.umferð fari í Olís deild karla.

Fram – ÍBV (Miðvikudagur 18:00) / Sigurvegari: Fram

Fram eru að koma úr frábærum sigri gegn Val þar sem liðið skoraði 47 mörk og sjálfstraustið í botni meðan ÍBV var í basli með Selfoss en sigldi þó sigrinum heim. Þetta mun verða bananahýði fyrir Fram þar sem Eyjamenn geta vel gefið þeim hörku leik en Fram munu hafa þetta í restina og vinna tveggja marka sigur.

HK - Valur (Miðvikudagur 18:30) / Sigurvegari: Valur

Valsmenn fengu 47 mörk á sig í síðasta leik og eitthvað sem segir mér að Gústi eigi eftir að nýta daga fram að þessum leik til að taka varnarleikinn í gegn. HK hafa byrjað tímabilið erfiðlega og eru ennþá í leit að sínum fyrsta sigri en ég þarf að hryggja þá að það mun ekki gerast í kvöld. Valsmenn eiga eftir að mæta dýrvitlausir og vinna þennan leik örugglega.

KA - Þór (Miðvikudagur 19:00) / Sigurvegari: Þór

Einn mesti spennandi viðureign deildinnar strax í 3.umferð. Þórsara hafa styrkt liðið vel í sumar og breiddin er orðin virkilega góð meðan við sáum KA ströggla í síðasta leik gegn Víking. Það er einhver púki í mér sem heldur að Þórsarar komi á óvart og vinni þennan leik með Brynjar Hólm úthvíldan eftir rauða spjaldið í síðasta leik.  

FH - Víkingur (Miðvikudagur 19:15) / Sigurvegari: FH

Ætli Víkingar byrji leikinn á fyrstu mínútu í kvöld? Þeir hafa tapað fyrstu tveim leikjunum sínum í upphafi tímabilsins á því að mæta ekki tilbúnir til leiks. FH naga sig eflaust í handarbökin að hafa kastað frá sér stigi gegn Aftureldingu í síðasta leik. Aron Pálmarsson mun brýna sína menn vel fyrir leik kvöldsins og Víkingar verða engin fyrirstaða fyrir spræka FH-inga.

Haukar - Afturelding (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: Haukar

Leikir þessara liða hafa alltaf verið góð skemmtun gegnum tíðina. Bæði lið hafa byrjað tímabilið vel og eru ennþá taplaus. Hlustendur Handkastsins vita að ég hef mikið dálæti á Haukum og ég tel þeir sýni styrk sinn í kvöld og vinni virkilega sterkt Aftureldingarlið nokkuð örugglega á Ásvöllum.

Selfoss – Stjarnan (Miðvikudagur 19:45) / Sigurvegari: Selfoss

Talandi um botnbaráttuleik af bestu gerð. Bæði liðin eru í leit af sínum fyrstu stigum þannig eitthvað mun láta undan í kvöld. Selfoss hafa litið talsvert betur út en Stjarnan í fyrstum leikjum tímabilsins en það telur ekkert í kvöld. Ég er búinn að fara fram og til baka með hvernig þessi leikur mun fara. Ætlaði að taka auðveldu leiðina og setja jafntefli en ég held að heimavöllurinn muni telja í kvöld og heimamenn fagni sigri, dyggilega studdir af sínu fólki í pöllunum.  


1.umferð (6 réttir)
2. umferð (4 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top