Bindur miklar vonir við komu Einars Braga

Ben Matschke, þjálfari Göppingen bindur miklar vonir við komu Einars Braga Aðalsteinssonar til félagsins. HK-ingurinn hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið og kemur frá sænska meistaraliðinu Kristianstad næsta sumar. Þar verður hann liðsfélagi Ýmis Arnar Gíslasonar, fyrirliða Göppingen.

Matschke leggur sérstaka áherslu á að með komu Einars Braga er Göppingen að fá sterkan varnarmann en segir hann jafnframt hafa sýnt góða takta í sókninni.

„Með Einari Braga fáum við mjög öflugan leikmann í miðja vörnina sem getur varið í þristinum,“ segir Matschke í tilkynningu á heimasíðu félagsins.

Þjálfarinn segir sóknarframmistöðu Einars hjá Kristianstad á síðasta tímabili hafa verið eftirtektarverða og að hann sýni nú sömu gæði í Meistaradeildinni. Göppingen sé ánægt með að hafa tryggt sér íslenskan leikmann á góðum aldri.

Einar Bragi segir ríka hefð Göppingen hafa heillað sig og að hann hafi strax fundið fyrir því að félagið hentaði honum. Hann hlakkar sérstaklega til að leika fyrir framan stuðningsmenn liðsins í fullri höll og upplifa stemninguna þar.

Í tilkynningunni kemur fram að Einar Bragi sé hugsaður sem arftaki Victors Klöve, bæði í vinstri skyttustöðunni og í miðri vörninni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top