Forsætisráðherrann fékk rautt spjald í fyrsta leik
Mads Claus Rasmussen

Beinir Johannesen, forsætisráðherra Færeyja er ekki aðeins einn yngsti þjóðarleiðtogi Evrópu heldur einnig virkur handboltamaður í efstu deildinni í Færeyjum. Beinir sem er 29 ára gamall, leikur með Team Klaksvík og fékk meðal annars að líta rauða spjaldið í sínum fyrsta leik eftir að hann tók við embætti forsætisráðherra.

Þetta kemur fram í skemmtilegu viðtali Handknattleikssambands Evrópu (EHF).

Beinir Johannesen tók við embætti forsætisráðherra Færeyja þann 13. apríl síðastliðinn en hefur haldið áfram að leika handbolta samhliða störfum sínum. Hann leikur sem línumaður með Team Klaksvík og hefur meðal annars leikið með félaginu í Evrópubikarkeppninni.

Í viðtalinu var hann spurður hvort það hefði verið erfitt fyrir dómarann að sýna forsætisráðherranum rauða spjaldið í leik á tímabilinu.

„Það fyndna er að þetta gerðist í fyrsta leiknum eftir að ég varð forsætisráðherra. Ég held að dómarinn hafi ekki hikað eitt augnablik við að sýna mér rauða spjaldið,“ sagði Johannesen léttur í bragði.

Forsætisráðherrann segir að það hafi í fyrstu verið gert góðlátlegt grín að því að hann væri orðinn forsætisráðherra en væri enn að spila handbolta. Nú sé það hins vegar orðið eðlilegur hluti af leiknum.

„Þeir þekkja mig vel enda léku þeir gegn mér áður en ég varð forsætisráðherra. Kannski leggja mótherjarnir sig aðeins meira fram við að dekka mig vegna þess að ég er forsætisráðherra,“ sagði Johannesen.

Johannesen segir handboltann mikilvægan þátt í lífi sínu og góða leið til að kúpla sig frá álagi stjórnmálanna.

„Það er frábært að hafa eitthvað sem fær mann til að hugsa um annað en vinnu og stjórnmál. Þetta er góð leið til að halda sér í formi og því er handbolti og pólitík fullkomin blanda fyrir mig.“

Hann segir jafnframt að margt sé líkt með því að stýra handboltaliði og ríkisstjórn.

„Í íþróttum og stjórnmálum eru sameiginleg markmið. Til þess að ná þeim þarf fólk að standa saman og vinna sem ein heild.“

Beinir ræddi einnig gríðarlegan uppgang færeysks handbolta undanfarin ár og segir íþróttina nú vera þá vinsælustu í landinu.

„Þegar handbolti er í sjónvarpinu sér maður virkilega áhrifin um öll Færeyjar. Göturnar eru tómar og allt landið virðist hljóðlátara.“

Hann bendir á að um fimmtán prósent þjóðarinnar hafi ferðast til að styðja landsliðið á stórmótum og segir árangur færeyskra handboltamanna hafa sett þjóðina á kortið. Forsætisráðherrann ætlar sjálfur að fylgja karlalandsliðinu á heimsmeistaramótið í janúar þar sem hann verður meðal áhorfenda í Magdeburg.

Hann segist jafnframt ánægður með að þurfa ekki að mæta stórstjörnum á borð við Óla Mittún og Elias Ellefsen á Skipagøtu í færeysku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top