Stymmi spáir í spilin: 9. umferð Olísdeildar kvenna

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 9.umferð fari í Olís deild kvenna.

Valur – ÍR(Miðvikudagur 19:30)  /  Sigurvegari: Valur

Valskonur hafa verið að finna sitt fyrra form hægt og rólega og þá helst Hafdís Renötudóttir sem labbar varla inná handboltavöllinn þessa dagana án þess að vera með 40% markvörslu eða meira. ÍR hafa aðeins misst flugið eftir góða byrjun og því miður fyrir þær þá mun Valur vera of stór biti fyrir þær í kvöld þó þær eigi góðar minningar frá Hlíðarenda síðan í fyrra.

KA/Þór – Fram (Föstudagur 19:00)  /  Sigurvegari: Fram

Fram komst loksins aftur á sigurbraut í síðustu umferð. Eins og allir vita þá næra sigrar og Fram eru komnar á beinu brautina aftur. KA/Þór tapaði gegn Selfoss í síðustu umferð en þessi 4 stig sem þær eru komnar með verða aldrei tekin af þeim. Fram mun fara norður á föstudaginn og taka bæði stigin heim.

Selfoss – Stjarnan (Föstudagur 20:15)  /  Sigurvegari: Selfoss

„Nýliðar“ Selfoss hafa verið frábærar í upphafi tímabilsins eftir að hafa tekið sæti Víkinga með rúmlega viku fyrirvara. Stjarnan hefur ekki náð að finna sig á tímabilinu síðan þær unnu Gróttu á Nesinu fyrr í vetur. Selfoss mun halda sínu góða gengi á heimavelli áfram og taka bæði stigin.

HK –  Grótta (Laugardagur 13:30)  /  Sigurvegari: Grótta

Grótta hefur heillað mig mikið í upphafi tímabils þó stigasöfnunin hafi ekki verið eins mikil og þær eflaust vilja. HK hefur verið að ströggla eins og við gerðum ráð fyrir. Grótta mun gera góða ferð upp í Kórinn á laugardaginn og fara með sigur af hólmi í hörkuleik sem mun ráðast á síðustu 10 mínútum leiksins.

Haukar – ÍBV (Laugardagur 14:00)  /  Sigurvegari: Haukar

Stórleikur umferðinnar. Liðin í efstu tveim sætum deildarinnar mætast. Verður Birna Berg klár hjá Eyjakonum? Er hægt að stöðva Haukana? Þetta eru spurningar sem við þurfum að bíða fram á laugardag til að fá svör við. Ef Birna Berg er með eiga Eyjakonur klárlega séns í Haukana en án hennar verður þetta erfitt. Ég ætla tippa á að Eyjakonur hvíli Birnu eitthvað áfram og verði án hennar í þessum leik og Haukar muni því klára þennan leik með sigri og halda áfram sigurgöngu sinni í deildinni.

1. umferð (4 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3. umferð (4 réttir)
4. umferð (5 réttir)
5. umferð (3 réttir)
6. umferði (4 réttir)
7. umferði (4 réttir)
8. umferð (5 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top