Viktor fékk frí en ekki Janus gegn Ogga
IHF

Janus Daði Smárason og félagar í Barcelona unnu öruggan 34–18 sigur á Caserío Ciudad Real, liði Þorgils Jóns Svölu Baldurssonar, í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Janus skoraði eitt mark en Þorgils komst ekki á blað.

Barcelona náði snemma góðu forskoti og leiddi 18–8 í hálfleik. Heimamenn héldu yfirburðum sínum eftir hlé og fögnuðu að lokum sextán marka sigri. Seif Elderaa skoraði átta mörk fyrir Barcelona og Timothey N’Guessan sex.

Carlos Ortega, þjálfari Barcelona, hvíldi nokkra landsliðsmenn eftir landsleikjahléið, þar á meðal Viktor Gísla Hallgrímsson. Hinn 18 ára gamli Sergej Novaković, sem kemur úr varaliði félagsins, fékk tækifæri í hans stað og nýtti það frábærlega. Hann varði tólf skot í síðari hálfleik og var með 55% markvörslu.

Þetta var áttundi sigur Barcelona í jafnmörgum deildarleikjum. Liðið er á toppi deildarinnar með sextán stig, jafnmörg og Bidasoa Irun sem hefur einnig unnið alla sína leiki. Barcelona tapaði síðast stigum í heimalandinu 3. maí árið 2025 þegar liðið gerði jafntefli við La Rioja á heimavelli.

Það eru því liðnir 556 dagar síðan Barcelona tapaði síðast stigum í spænsku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top