Reynir Þór tjáir sig um Golla málið
Sævar Jónasson

Reynir Þór Stefánsson segist nú kominn hundrað prósent inn í leik Melsungen eftir erfitt fyrsta ár í þýsku Bundesligunni. Meiðsli settu svip sinn á fyrsta tímabil landsliðsmannsins í Þýskalandi eftir að hann sló í gegn með Fram í Olís-deild karla.

„Það hefur verið mikið upp og niður. Þetta byrjaði rosalega erfitt en síðan hef ég komið meira og meira inn í þetta. Mér líður vel núna og gengur betur og betur,“ sagði Reynir Þór í samtali við Handkastið aðspurður út í tímann sinn hjá Melsungen.

Meiðsli í leikmannahópi Melsungen hafa opnað á fleiri mínútur fyrir Reyni Þór á öðru tímabili hans hjá félaginu. Hann hefur meðal annars leyst stöðu hægri skyttu.

„Ég veit nú ekki við hverju ég bjóst. Það eru auðvitað einhver meiðsli og ég reyndi bara að grípa mínúturnar þegar ég fékk þær. Núna finnst mér ég bara kominn hundrað prósent inn í þetta.“

Reynir Þór fór beint úr Olís-deildinni í Bundesliguna. Hann segir muninn helst liggja í líkamlegum styrk og hraða leikmanna.

„Líkamlega er þetta rosamunur. Þeir eru alveg töluvert þyngri og sneggri heldur en í Olís-deildinni. Handboltalega er þetta svipað. Maður spilar sinn leik og þá kemur þetta.“

Umgjörðin í Þýskalandi kom honum mest á óvart. Hann segir stemninguna í höllunum og áhuga áhorfenda gera það sérstaklega gaman að spila í deildinni. Þétt leikjadagskrá í Bundesligunni og Meistaradeildinni gefur honum jafnframt tækifæri til að mæta bestu liðum Evrópu. Á milli leikja fer tíminn að stórum hluta í leikgreiningu, yfirferð á leikkerfum og endurheimt.

Reynir Þór var einnig spurður um umræðuna í kringum liðsfélaga sinn Johannes Golla, fyrirliða þýska landsliðsins, og hvort hún hefði haft áhrif inni í klefa Melsungen en mál Johannes Golla hefur verið mikið á milli tannana á fólki en landsliðsfyrirliðinn gekk í raðir Melsungen í sumar eftir langa dvöl hjá Flensburg. Golla hefur hinsvegar óskað eftir því að fá að yfirgefa Melsungen til að ganga aftur í raðir Flensburg.

„Golla er bara toppatvinnumaður. Að fá að spila með honum er bara geðveikt,“ sagði Reynir Þór. Hann sagðist geta lært mikið af því að sjá hvernig Golla æfir og hugsar um sig. „Það er bara unun að horfa á hann.“

Reynir Þór sagði leikmenn hafa tekið stuttan fund um málið og að hópurinn einbeitti sér að æfingum og leikjum. Spurður hvort hann ætti von á því að Golla færi eftir tímabilið var svarið einfalt.

„Ég hef ekki hugmynd um það. Það verður bara að koma í ljós.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top