Ein sú sigursælasta leggur skóna á hilluna
Ritzau Scanpix /AFP

Norska handboltastjarnan Stine Skogrand hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna eftir yfirstandandi tímabil. Skogrand, sem er 33 ára gömul, hefur verið í lykilhlutverki hjá norska landsliðinu undanfarin 13 ár og unnið til fjölda verðlauna á stórmótum.

Skogrand hefur leikið 190 landsleiki fyrir Noreg og skorað í þeim 386 mörk. Á ferlinum hefur hún meðal annars orðið fjórum sinnum Evrópumeistari, tvívegis heimsmeistari og einu sinni ólympíumeistari. Alls hefur hún unnið til tíu verðlauna með norska landsliðinu á stórmótum.

Skogrand hefur leikið með danska félaginu Ikast frá árinu 2018 en samningur hennar við félagið rennur út næsta sumar. Hún hefur ákveðið að framlengja ekki samninginn og hætta þá handknattleiksiðkun.

Ákvörðunin tengist meðal annars fjölskyldunni en Skogrand á tvo syni og segist vilja verja meiri tíma með þeim.

„Ég finn að nú sé rétti tíminn til að eyða kvöldum og helgum á skólaviðburðum og fótboltaleikjum hjá strákunum. Ég hef þegar misst af mörgu og vil nú geta verið meira til staðar,“ sagði Skogrand í samtali við norska handknattleikssambandið.

Hún viðurkennir að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld enda hafi handboltinn verið stór hluti af lífi hennar.

„Það verður tregablandið að leggja skóna á hilluna næsta sumar. Þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag og ég er ævinlega þakklát og stolt af öllu því sem ég hef fengið að upplifa með landsliðinu.“

Skogrand glímir nú við beinbrot í hægri fæti og er ekki í norska landsliðshópnum fyrir komandi Evrópumót. Hún vonast þó til að ná sér í tæka tíð og fá tækifæri til að leika á einu síðasta stórmóti áður en ferlinum lýkur.

Ole Gustav Gjekstad, landsliðsþjálfari Noregs segir að stórt skarð verði höggvið í norska landsliðið við brotthvarf Skogrand. Hann lýsir henni sem afar mikilvægum leikmanni, ekki síst í varnarleiknum, þar sem hún hafi verið einn af leiðtogum liðsins um árabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top