Fyrsta tap Erlings kom í bikarnum
Minden

Erlingur Richardsson og lærisveinar hans í GWD Minden eru úr leik í þýska bikarnum eftir 33–32 tap á útivelli gegn Eintracht Hagen í 16-liða úrslitum í kvöld. Hagen er þar með komið í átta liða úrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Hagen leiddi 15–11 í hálfleik og jók forskotið í sjö mörk, 19–12, í upphafi síðari hálfleiks. Minden vann sig aftur inn í leikinn og var þremur mörkum undir, 29–26, þegar rúmar tíu mínútur voru eftir. Lærisveinar Erlings minnkuðu muninn í eitt mark en nær komust þeir ekki fyrir lokaflautið.

Minden hafði áður unnið TuS Spenge 36–23 í fyrstu umferð og slegið úrvalsdeildarlið Bietigheim út með 34–32 sigri á útivelli. Það var hins vegar annað lið úr þýsku 2. deildinni sem batt enda á bikarævintýri Minden.

Um var að ræða fyrsta tap Minden undir stjórn Erlings sem tók við liðinu fyrir rúmlega mánuði síðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top