Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 6.umferð fari í Olís deild kvenna. Selfoss – HK (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Selfoss HK komust á blað á sunnudaginn eftir sigur á Stjörnunni og lyftu sér af botni deildinnar. Selfoss hafa ekki fundið flugið aftur eftir frábæran sigur á Val í fyrstu umferð. Þetta er sannkallaður botnbaráttuslagur og stigin 2 eru lífsnauðsynleg fyrir bæði lið í kvöld. Ég held að heimavöllurinn hafi þetta og Selfyssingar komi sér aftur á sigurbraut. ÍBV – Fram (Laugardagur 14:00) / Sigurvegari: ÍBV ÍBV vann góðan sigur á ÍR í Skógarselinu í síðustu umferð eftir að hafa byrjað leikinn hægt. Fram aftur á móti geta verið virkilega ósáttar með sína spilamennsku gegn Val þar sem þær fóru með haug af færum og góðri stöðu til þess að vinna Valskonur. Núna bíður þeirra leikur á einum erfiðasta útivelli á Íslandi þar sem heimakonur munu fara með sigur af hólmi og halda áfram eltingarleik sínum við Haukana á toppi deildinnar. Haukar – ÍR (Laugardagur 14:30) / Sigurvegari: Haukar Haukar á toppi deildinnar með fullt hús stiga, þarf ekkert að segja mikið meira um þetta frábæra lið. ÍR tapaði sínum fyrsta leik um síðustu helgi þegar þær fengu stórt próf úr efri hluta deildinnar. Á laugardaginn bíður þeirra jafnvel enn stærra próf þegar þær mæta á Ásvelli. Því miður fyrir ÍR-inga munu þær fara tómhentar heim úr þessu prófi og Haukar verða áfram á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Valur – Grótta (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: Valur Valskonur voru með frábæran sigur á Fram í síðustu umferð þrátt fyrir að marga lykilmenn hafi vantað í hópinn þeirra. Grótta unnu KA/Þór á Nesinu og komu sér aðeins lengra frá botni deildinnar. Valur munu halda uppteknum hætti og vinna Gróttu í hörku leik en það mun ekki vera auðveldur sigur. KA/Þór – Stjarnan (Laugardagur 17:00) / Sigurvegari: Stjarnan KA/Þór er eina stigalausa lið deildinnar eftir að HK unnu Stjörnuna um síðustu helgi. Það þarf varla að taka fram hversu gífurlega mikilvægur þessi leikur er fyrir bæði lið. Stjarnan getur komið sér 4 stigum frá fallsæti meðan heimakonum bráðnauðsynlega vantar stig til halda í við liðin fyrir ofan sig. Stjarnan mun fara norður og sækja bæði stigin og vinna tveggja marka sigur. 1.umferð (4 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3. umferð (4 réttir)
4.umferð (5 réttir)
5.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.