Stymmi spáir í spilin: 1. umferð Olísdeildar kvenna

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 1.umferð fari í Olís deild kvenna.

ÍBV– KA/Þór (Laugardagur 13:00)  /  Sigurvegari: ÍBV

Landsbyggðarslagur til að opna fyrstu umferðina. KA/Þór fer til Vestmannaeyja og verða eflaust fegnar að klára það af. ÍBV er spáð titlinum meðan KA/Þór hefur farið í gegnum miklar mannabreytingar í sumar og munu eflaust vera nokkrar vikur að tjasla hópnum saman. ÍBV mun rúlla þægilega yfir þennan leik og hefja vegferðina að deildarmeistaratitlinum með 2 stigum.

Valur – Selfoss (Laugardagur 15:00)  /  Sigurvegari: Valur

Valskonur á leiðinni inn í tímabilið með töluvert breytt lið og ungar stelpur. Lesendur Handkastsins þekkja allir sögu Selfoss sem tók sæti Víkinga 9 dögum fyrir þennan fyrsta leik. Valur mun fara með sigur af hólmi í þessum leik en Selfyssingar munu sína okkur að þær ætli sér stóra hluti í deildinni í vetur.

ÍR – Stjarnan (Laugardagur 16:00)  /  Sigurvegari: ÍR

ÍR stelpur mæta til  leiks með nýtt þjálfarateymi en nokkuð áþekkan hóp og í fyrra meðan miklar breytingar hafa orðið á Stjörnunni í sumar. Ég held þetta verði mjög jafn og spennandi leikur en einstaklingsgæði leikmanna ÍR muni koma þessu yfir línuna fyrir þær í dag.

Fram – Grótta (Laugardagur 18:15)  /  Sigurvegari: Fram

Tvíhöfði í Úlfarsárdalnum þennan laugardaginn og hefja stelpurnar leik beint á eftir strákunum á laugardaginn. Fram hefur verið besta lið um miðja deild undanfarin ár og verða þarf eflaust aftur í ár meðan Grótta er að koma upp en hefur náð að styrkja sig í sumar. Fram mun klára þennan leik á gæðum en látið ykkur ekki koma á óvart ef það mun verða bras.

Haukar – HK (Sunnudagur 15:00)  /  Sigurvegari: Haukar

Haukum er spáð góðu gengi í vetur meðan HK var spáð í neðasta sæti af þeim liðum sem fengu stig í könnun fyrirliða og forráðamanna um daginn. HK mun verða í brasi með varnarleikinn hjá sér í vetur og miðað við hvernig Haukar spiluðu á dögunum gegn Val þá munu þær tæta vörn HK í sig á sunnudaginn. Örggur heimasigur í fyrstu umferð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top