Þýska stórliðið SC Magdeburg verður án spænska landsliðsmannsins Antonio Serradilla næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir með spænska landsliðinu í síðustu viku. Þetta staðfesti félagið í gær. Serradilla, sem er 27 ára gamall, meiddist í landsleik Spánar gegn Danmörku í EHF EURO Cup síðastliðinn miðvikudag. Eftir frekari læknisskoðanir hefur komið í ljós að hann verður frá keppni í nokkrar vikur en félagið hefur ekki gefið upp nákvæmlega hvers eðlis meiðslin eru. Spánverjinn er mikilvægur hlekkur í varnarleik Magdeburg og hefur verið einn af lykilmönnum liðsins síðan hann sneri aftur til félagsins frá Stuttgart síðasta sumar. Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburg, segir meiðslin mikið áfall, ekki síst vegna þeirra mikilvægu leikja sem fram undan eru. „Meiðsli Antonio eru auðvitað mikið áfall fyrir okkur. Hann hefur aðlagast liðinu mjög fljótt eftir endurkomuna á þessu tímabili og orðið einn af lykilmönnum varnarleiksins. Þess vegna eru meiðslin sérstaklega svekkjandi, ekki síst fyrir tvo mikilvæga leiki sem fram undan eru,“ sagði Wiegert í tilkynningu félagsins. „Mér þykir þó fyrst og fremst leiðinlegt fyrir Antonio sjálfan og vona að hann verði fljótlega kominn aftur á handboltavöllinn,“ bætti Wiegert við. Magdeburg mætir Hamburg á heimavelli í sextán liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í kvöld, miðvikudag. Þar gæti Luca Witzke leikið sinn fyrsta leik fyrir Hamburg eftir félagaskiptin frá Flensburg fyrr í vikunni. Hjá Magdeburg leika íslensku landsliðsmennirnir Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson. Fjarvera Serradilla gæti meðal annars aukið ábyrgð Elvars Arnar í varnarleiknum á næstu vikum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.