Sigtryggur Daði frá keppni næstu mánuði
Egill Bjarni Friðjónsson

Sigtryggur Daði Rúnarsson, leikmaður ÍBV í Olís-deild karla, verður frá keppni næstu mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn KA á Akureyri í byrjun október.

Þetta staðfestir Bergvin Haraldsson, þjálfari ÍBV, í samtali við Handkastið en mikil meiðslavandræði hafa herjað á Eyjamenn á fyrstu mánuðum tímabilsins.

Sigtryggur Daði meiddist í leik ÍBV gegn KA fyrir norðan og þurfti í kjölfarið að gangast undir aðgerð á hné. Að sögn Bergvins eru enn einhverjir mánuðir í að Sigtryggur Daði geti snúið aftur á handboltavöllinn.

Það er því ljóst að Eyjamenn verða án Sigtryggs Daða um nokkurt skeið til viðbótar en fjarvera hans bætist við langan meiðslalista liðsins.

ÍBV hefur verið að rétta úr kútnum að undanförnu undir stjórn Bergvins Haraldssonar og unnið tvo síðustu leiki sína í Olís-deildinni, gegn Víkingi og Stjörnunni.

Þrátt fyrir jákvæð úrslit að undanförnu hefur Bergvin þurft að glíma við töluverð skakkaföll í leikmannahópnum en auk Sigtryggs Daða hafa meðal annars Elís Þór Aðalsteinsson, Róbert Sigurðarson, Jakob Ingi Stefánsson og Ívar Bessi Viðarsson ekkert leikið með liðinu á tímabilinu.

Þá hefur Dagur Arnarsson og Daníel Þór Ingason verið að glíma við meiðsli. ÍBV mætir Aftureldingu í næstu umferð Olís-deildarinnar, fimmtudaginn 12. nóvember í 10.umferð deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top