Reynir Þór ógnar sæti tveggja landsliðsmanna
Sævar Jónasson

Reynir Þór Stefánsson leikmaður þýska úrvalsdeildarliðsins MT Melsungen fékk mikið lof í nýjasta þætti Handkastsins eftir frammistöðu sína með íslenska landsliðinu gegn Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028. Þar var meðal annars rætt hvort Reynir Þór væri búinn að vinna sér inn sæti í landsliðshópnum fyrir næsta stórmót.

Reynir Þór nýtti tækifærið vel í báðum leikjunum og sýndi hvers hann er megnugur, bæði í sókn og vörn. Frammistaða hans vakti athygli þeirra sem sátu við hljóðnemann í Handkastinu og töldu þeir að hann hefði styrkt stöðu sína verulega í landsliðinu.

„Reynir Þór stimplaði sig klárlega inn í landsliðið og ég held að það sé orðið mjög erfitt að líta framhjá honum fyrir næsta mót,“ sagði Björn Ingi Jónsson.

Styrmir, betur þekktur sem Stymmi klippari, velti því í kjölfarið fyrir sér hvort Reynir Þór væri jafnvel kominn fram fyrir Hauk Þrastarson í goggunarröðinni hjá Snorra Steini Guðjónssyni landsliðsþjálfara.

„Er Reynir búinn að taka fram úr Hauki Þrastarsyni? Við höfum margoft talað um þetta og gerðum það í síðasta þætti. Ólafur Stefánsson hefur talað um þetta, Haukur er í þessum spænska bolta en er Reynir ekki líkari því sem Snorri Steinn er að leita eftir í sóknarmanni?“ velti Stymmi fyrir sér.

Björn Ingi var ekki alveg á sama máli og taldi líklegra að frammistaða Reynis Þórs gæti haft áhrif á stöðu Þorsteins Leós Gunnarssonar í landsliðshópnum. Þorsteinn Leó er að glíma við meiðsli þessa stundina og var því ekki með landsliðinu í þessu verkefni.

„Ég held að Reynir sé frekar að taka sætið hans Þorsteins Leós, því miður. Eins og Steini er frábær þá hefur hann verið farþegi í þessum landsliðsverkefnum sem hann hefur verið,“ sagði Björn Ingi.

Davíð Már Kristinsson tók undir að Reynir Þór hefði staðið sig vel og hafði mikið lof á þeim framförum sem hann hefur tekið síðan hann gekk til liðs við MT Melsungen frá Fram.

„Reynir er frábær alhliða leikmaður, bæði varnar- og sóknarlega og góður að bera upp boltann. Hann á þó nokkuð inni áður en hann nær hámarksgetu. Það er hátt þak á honum og gríðarlegar framfarir hjá honum í Melsungen. Hann er bara 21 árs og gríðarlega spennandi leikmaður,“ sagði Davíð Már Kristinsson.

Reynir Þór er á sínu öðru tímabili hjá Melsungen í þýsku Bundesligunni en meiðsli settu strik í reikninginn á hans fyrsta tímabili í Þýskalandi. Hann hefur hins vegar fengið aukið hlutverk á yfirstandandi tímabili og virðist vera að uppskera eftir erfiða byrjun á atvinnumannaferlinum.

Frammistaða hans í landsleikjunum tveimur hefur nú aukið samkeppnina um sæti í íslenska landsliðshópnum fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í janúar í Þýskalandi á næsta ári.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top