Forráðamenn ungverska stórliðsins Győri Audi ETO KC hafa nú opinberlega viðurkennt að félagið standi frammi fyrir verulegum fjárhagslegum áskorunum. Yfirlýsingin kemur í kjölfar frétta um að leikmenn félagsins hafi verið beðnir um að samþykkja allt að 50% launalækkun. Handkastið greindi frá því í gær að óvissa ríkti um fjárhagslega framtíð sjöfaldra Evrópumeistara Győr og að nokkrar af stærstu stjörnum félagsins gætu yfirgefið það á næstu misserum. Í nýrri yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að breytingar á fjármögnun ungverskra íþróttafélaga hafi skapað erfiðar aðstæður. Forráðamenn Győr segjast hafa átt í viðræðum við styrktaraðila og samstarfsaðila um hvernig bregðast eigi við stöðunni. Félagið segir að núverandi aðstæður kalli á ábyrga fjármálastjórn, erfiðar ákvarðanir og sameiginlegt átak til að tryggja áframhaldandi rekstur og samkeppnishæfni liðsins. Óvissa hefur meðal annars verið um framtíð samstarfsins við bílaframleiðandann Audi, sem hefur verið aðalstyrktaraðili félagsins um árabil. Núverandi samningur gildir út þetta tímabil en ekki hefur verið staðfest hvort hann verði framlengdur. Þá gætu breytingar á skattareglum í Ungverjalandi aukið kostnað félagsins verulega. Fyrirhugað er að lækka árleg tekjumörk fyrir hagstæða skattlagningu atvinnuíþróttafólks úr 500 milljónum forinta í 60 milljónir í janúar næstkomandi. Győr hefur um árabil verið eitt fjárhagslega sterkasta handboltafélag heims og laðað til sín margar af bestu handknattleikskonum heims. Félagið hefur unnið Meistaradeild Evrópu sjö sinnum og verið í fremstu röð evrópsks kvennahandbolta undanfarin ár. Forráðamenn félagsins hafa enn hvorki staðfest né hafnað fregnum um að leikmenn hafi verið beðnir um að samþykkja allt að helmingslækkun launa. Ekki liggur heldur fyrir hvort einhverjir leikmenn muni yfirgefa félagið vegna stöðunnar. Nýja yfirlýsingin staðfestir hins vegar að fjárhagslegar áskoranir eru til staðar og að forráðamenn Győr vinna nú að lausn málsins. Verði félagið að draga verulega úr útgjöldum gæti það haft mikil áhrif á styrkleikahlutföllin í evrópskum kvennahandbolta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.