Þýskar goðsagnir setja pressu á Alfreð fyrir HM
SOEREN STACHE

Stefan Kretzschmar, ein þekktasta handboltagoðsögn Þýskalands telur að þýska karlalandsliðið undir stjórn Alfreðs Gíslasonar eigi raunhæfa möguleika á að verða heimsmeistari á heimavelli í janúar. Hann segir þó að hugarfar leikmannanna muni ráða miklu um hvort Þjóðverjum takist að fara alla leið.

Kretzschmar, sem er 53 ára gamall, ræddi möguleika þýska landsliðsins á kynningu á útsendingum streymisveitunnar Dyn frá heimsmeistaramótinu 2027. Hann telur að þýska liðið búi yfir nægum hæfileikum til að berjast um titilinn en að lykilatriðið verði að leikmenn hafi sjálfir trú á verkefninu.

„Ég held að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af hæfileikunum. Það sem mun skipta mestu máli er hugarfar liðsins,“ sagði Kretzschmar.

Hann telur mikilvægt að leikmenn þori að setja sér það markmið að verða heimsmeistarar og sýni að þeir hafi raunverulega trú á því. Takist jafnframt að mynda sterk tengsl milli liðsins og þýsku áhorfendanna geti það reynst lykillinn að árangri.

Kretzschmar bendir á að fyrsti virkilega stóri prófsteinn Þjóðverja gæti ekki komið fyrr en í átta liða úrslitum mótsins. Hann vonast til þess að liðið geti endurtekið leikinn frá árinu 2007 þegar Þjóðverjar urðu heimsmeistarar á heimavelli.

SOEREN STACHE
(Photo by SOEREN STACHE / dpa Picture-Alliance via AFP)

Heiner Brand sem stýrði Þýskalandi til heimsmeistaratitilsins árið 2007 tekur undir bjartsýnina og gengur jafnvel lengra í mati sínu á núverandi landsliði.

„Við höfum ekki haft jafn mikla möguleika með þýska landsliðinu í 50 ár. Þetta er besta kynslóðin í áratugi,“ segir Brand í bókinni Generation Gentlemen eftir Ron Ulrich.

Brand telur jafnframt að Þjóðverjar séu með sterkari skyttulínu en nokkurt annað landslið í heiminum, þar á meðal Danir, sem eru taldir sigurstranglegastir á mótinu. Ummælin vekja athygli enda hefur Alfreð Gíslason verið að byggja upp þýska landsliðið undanfarin ár og hefur nú úr fjölmörgum öflugum leikmönnum að velja.

Þjóðverjar hefja heimsmeistaramótið gegn Túnis í München þann 13. janúar en mótið stendur til 31. janúar. Síðast urðu Þjóðverjar heimsmeistarar árið 2007 og því eru miklar væntingar gerðar til liðsins á heimavelli. Alfreð hefur þegar hafið undirbúning fyrir lokaval sitt á HM en Þjóðverjar unnu báða leiki sína í undankeppni EM í síðustu viku, gegn Belgíu og Slóvakíu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top