Landsleikjahléið er búið og deildarkeppnirnar eru komnar á fullt en heil umferð fór fram í sænsku deildinni í kvöld á meðan Larvik kom sér á sigurbraut á ný í norsku kvennadeildinni. Larvik unnu þægilegan sigur á Flint Tønsberg í kvöld, 41-29 en Dana Björg Guðmundsdóttir er áfram fjarri góðu gamni vegna meiðsla, Larvik eru á toppi deildarinnar með átján stig af tuttugu mögulegum og eru tveimur stigum á undan Fredrikstad. Skanderborg tapaði naumlega gegn Mors-Thy á heimavelli í danska bikarnum í kvöld en þetta var fyrsti leikurinn í átta liða úrslitunum, lokatölur urðu 32-33. Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti flottan leik og skoraði sjö mörk úr átta skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk eina brottvísun. Í dönsku úrvalsdeildinni unnu Horsens góðan sigur á Ringkøbing, 37-28 þar sem Katrín Tinna Jensdóttir skoraði eitt mark úr einu skoti en Horsens sitja í sjöunda sæti deildarinnar með ellefu stig eftir tíu leiki. Í Svíþjóð fór fram heil umferð í karladeildinni en meðal annars voru tveir Íslendingaslagir á dagskrá þar sem Sävehof tók á móti Karlskrona á meðan Kristianstad tók á móti Amo á sama tíma. Í Partille Arena unnu Sävehof góðan þriggja marka sigur á Karlskrona, 33-30 en Birgir Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk en Arnór Viðarsson skoraði níu mörk fyrir gestina. Sävehof eru í þriðja sæti deildarinnar með þrettán stig eftir átta leiki á meðan Karlskrona eru í tíunda sæti með sjö stig eftir níu leiki. Heimamenn reyndust sterkari í Kristianstad þegar þeir sigruðu Amo, 39-33 urðu lokatölurnar. Íslendingarnir í Kristianstad voru drjúgir að venju en Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði átta mörk úr ellefu skotum og gaf fjórar stoðsendingar á meðan Baldur Fritz Bjarnason skoraði sex mörk úr tólf skotum en þar af voru tvö mörk úr vítum. Hjá gestunum var Arnar Birkir Hálfdánsson með eitt mark úr fjórum skotum og þrjár stoðsendingar. Kristianstad eru í sjötta sæti deildarinnar með tólf stig, þremur stigum á eftir toppliði Malmö en með tvo leiki til góða á meðan Amo eru í sætinu fyrir neðan með einu stigi minna. Úrslit kvöldsins: Larvik 41-29 Flint Tønsberg Skanderborg 32-33 Mors-Thy Horsens 37-28 Ringkøbing Kristianstad 39-33 Amo Sävehof 33-30 Karlskrona

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.