Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 4.umferð fari í Olís deild karla. ÍBV– HK (Fimmtudagur 18:00) / Sigurvegari: ÍBV Stjarnan - Fram (Fimmtudagur 18:30) / Sigurvegari: Fram Afturelding - Selfoss (Fimmtudagur 18:45) / Sigurvegari: Afturelding FH - Haukar (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: Jafntefli Stórleikur umferðarinnar og baráttan um Memphis. Haukar eru á toppi deildarinnar og FH fylgja þar fast á eftir með einu stigi minna. Leikir þessara liða í deildarkeppninni hafa undanfarið endað í naglbýtum svo ég ætla að brydda upp á þeirri nýjung í spá minni og segja að þessi leikur endi með jafntefli þar sem jöfnunarmarkið kemur úr vítakasti eftir að leiktíminn er liðinn. Víkingur - Þór (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Þór Víkingar hafa einunigs unnið 11 af síðuastu 96 leikjum sínum í efstu deild og það verður því miður 11 af síðustu 97 leikjum eftir þennan leik gegn Þór á föstudagskvöldið. Þórsara hafa byrjað tímabilið frábærlega og munu klárlega þennan leik með 2-3 mörkum. Valur – KA (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur
ÍBV var með frábæran endurkomusigur gegn Fram í síðustu umferð eftir að hafa verið mest 9 mörkum undir. HK hafa staðið í liðum framan af hingað til á mótinu en það vantar töluvert upp á breiddina í hópnum sökum meiðsla. Ég sé fyrir mér að ÍBV verði í svona 45-50 mínútur að slíta HK frá sér en vinni þetta svo á lokamínútunum.
Stjarnan slapp frá Selfossi með jafntefli í síðasta leik þar sem Siggi Dan varði víti þegar leiktíminn var runninn út en sýndu þó virkilega góða kafla í leiknum inn á milli. Fram naga sig í handarbökin eftir að hafa misst 9 marka forskot niður gegn ÍBV í síðasta leik og vilja kvitta fyrir það sem fyrst. Það hafa verið meiðsli í herbúðum Fram í upphafi tímabilsins en ég held það komi ekki að sök í kvöld og þeir klári Stjörnuna með 2-3 mörkum í Garðabænum.
Afturelding voru klaufar gegn ýliðunum á síðustu leiktíð og nýtt þjálfarateymi í Mosfellsbænum vill eflaust klára þessa leiki sem Afturelding eru taldir sterkari fyrirfram. Selfoss eru eflaust hundsvekktir að hafa ekki fengið tvö stig gegn Stjörnunni í síðasta leik. Ég held Afturelding muni klára þennan leik fagmannlega og sýna að þeir séu talsvert sterkara lið en Selfoss.
Lokaleikur umferðarinnar er undanúrslitaeinvígið frá síðustu leiktíð þar sem Valsmenn fá KA í heimsókn. Bæði lið eru með fjögur stig í upphafi tímabils og augljóst að liðin eru ennþá að spila sig saman. Dagur Árni Heimisson mætir á sinn gamla heimavöll með KA og ég held hann eigi eftir að eiga stórleik en það mun ekki duga þar sem Valsmenn með Gunnar Róbertsson í broddi fylkingar muni fara með sigur af hólmi líkt og í vor.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.