Einn leikur fór fram í Norsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Íslendingaliðin Elverum og Drammen mættust á heimavelli Drammen. Fyrir leik voru Elverum á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, sextán stig eftir átta leiki á meðan heimamenn voru meðal neðstu liða með aðeins fjögur stig. Gestirnir áttu ekki í miklum vandræðum með að vinna leik kvöldsins en þeir unnu öruggan átta marka sigur, 26-34 en Tryggvi Þórisson var ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni á meðan Ísak Steinsson átti erfitt uppdráttar í marki Drammen þann tíma sem hann var í markinu en hann varði aðeins tvö skot af þeim ellefu sem hann fékk á sig eða 18% markvarsla. Elverum eru eftir leikinn með átján stig eftir níu leiki, fjórum stigum á undan Runar sem eiga þó leik inni á meðan Drammen sitja áfram í tólfta sæti deildarinnar. Úrslit kvöldsins: Drammen 26-34 Elverum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.